Kjarasamningar, nefndir

Teikning af fólki tala saman og vinna við skrifborð.

Fjölmargar nefndir eru starfandi sem snúa að kjarasamningum og launakjörum starfsfólks Reykjavíkurborgar. Þær eru samninganefnd, starfskjara- og samstarfsnefndir, kjaramálanefnd og kjaranefnd.

Kjarasamningar; samninganefnd, kjaramálanefnd, kjaranefnd.

Samninganefnd Reykjavíkurborgar er skipuð af borgarstjóra. Borgarráð fól borgarstjóra með samþykkt sinni 28. febrúar 1989 að annast kjarasamningsgerð fyrir hönd Reykjavíkurborgar með skírskotun í 3. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.
Borgarstjóri skipaði í nefndina 24. október 2022.

Í samninganefnd Reykjavíkurborgar eru:

  • Rakel Guðmundsdóttir, formaður
  • Kolbeinn Guðmundsson, varaformaður
  • Einar Geir Þorsteinsson
  • Íris Jóhannsdóttir
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Ásdís Ásbjörnsdóttir
  • Margrét Grétarsdóttir
  • Ragnheiður E Stefánsdóttir
  • Haukur Þór Haraldsson, starfsmaður nefndar

Starfskjara- og samstarfsnefndir

Fulltrúar samninganefndar ásamt fulltrúum stofnana og fyrirtækja borgarinnar sitja í fjölmörgum samstarfsnefndum við hin ýmsu stéttarfélög á grundvelli kjarasamninga og fara þær með mál sem upp kunna að koma á milli samninga. Starfskjaranefnd (samstarfsnefnd) var fyrst stofnuð vegna Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar með samþykkt borgarráðs 19. desember 1947.

Samningsaðilar Reykjavíkurborgar eru um 25 stéttarfélög.

Kjaramálanefnd

Stjórn Sambandsins skipar kjaramálanefnd, sem er stjórn og samninganefnd til ráðgjafar í vinnumarkaðsmálum, kjarasamningagerð og við undirbúning kjarastefnu og samningsmarkmiða Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í nefndinni sitja fulltrúar úr stjórn Sambandsins og sérfræðingar í kjaramálum sveitarfélaga.

Stjórn Sambandsins setur markmið og mótar stefnu Sambandsins í kjaramálum og formaður samninganefndar Sambandsins auk framkvæmdastjóra Sambandsins bera ábyrgð á að markmiðum og stefnu Sambandsins í kjarasamningagerð sé fylgt.Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga fer með samningsumboð Reykjavíkurborgar gagnvart Félagi íslenskra hljómlistarmanna og Kennarasambandi Íslands; vegna Félags grunnskólakennara, Skólastjórafélags Íslands, Félags tónlistarkennara, Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda í leikskólum.

Formaður samninganefndar Reykjavíkurborgar á sæti í samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga í kjaraviðræðum við áðurnefnd stéttarfélög og í viðræðum við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Þá situr formaður fundi kjaramálanefndar þegar málefni áðurnefndra kjaraviðræðna eru rædd.

Af hálfu borgarinnar á sæti í kjaramálanefnd:

  • Lóa Birna Birgisdóttir

Kjaranefnd

Kjaranefnd starfar í umboði borgarráðs og ákvarðar laun og önnur starfskjör þeirra sem undir nefndina falla sbr. 1. gr. reglna um réttindi og skyldur æðstu stjórnendur Reykjavíkurborgar.

Við ákvörðun launa og annarra starfskjara stjórnenda skal kjaranefnd líta til launaþróunar hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum almennt auk þess að líta til launa og launaþróunar sambærilegra hópa hjá ríkinu. Jafnframt skal kjaranefnd gæta jafnræðis- og jafnréttissjónarmiða við launasetningu. Kjaranefnd skal horfa til almennrar stöðu og þróunar kjaramála á vinnumarkaði.

Netfang: kjaranefnd@reykjavik.is

Kjaranefnd skipa:

  • Ólafur Darri Andrason, formaður
  • Erna Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Guðbjörg Andrea Jónsdóttir

Til vara:

  • Runólfur Leifsson
  • Angantýr Einarsson
  • Drífa Sigurðardóttir

Hlutverk kjaranefndar / Samþykkt fyrir kjaranefnd Reykjavíkur