Sérkennsla á unglingastigi Norðlingaskóla
Norðlingaskóli leitar að sérkennara eða kennara með reynslu af kennslu á unglingastigi til að ganga til liðs við kraftmikinn og skapandi starfsmannahóp. Um er að ræða 100% starf skólaárið 2026-2027, frá 1. ágúst 2026.
Í Norðlingaskóla er lögð áhersla m.a. á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks.
Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 520 nemendur í 1. – 10. bekk, staðsettur í fallegu einstöku umhverfi í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.
Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.
Helstu verkefni:
- Skipuleggur nám og sinnir kennslu nemenda með sérþarfir í samvinnu við aðra fagaðila í unglingadeild, ásamt umsjónarkennurum og stoðþjónustu skólans.
- Tekur þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur:
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Framhaldsmenntun í sérkennslu æskileg eða kennslureynsla á unglingastigi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum og unglingum.
- Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
- Áhugi á rafrænum kennsluháttum.
- Góð íslenskukunnátta er algjört skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn á íslensku, ásamt upplýsingum um nám og starfsreynslu, auk kynningarbréfs, í gegnum vef Reykjavíkurborgar þar sem starfið er auglýst.
Frekari upplýsingar um Norðlingaskóla er að finna á heimasíðu skólans: nordlingaskoli.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónína Rós Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri í s: 411-7640.