Back to the jobs page

Sérkennsla á unglingastigi Norðlingaskóla

Norðlingaskóli leitar að sérkennara eða kennara með reynslu af kennslu á unglingastigi til að ganga til liðs við kraftmikinn og skapandi starfsmannahóp. Um er að ræða 100% starf skólaárið 2026-2027, frá 1. ágúst 2026. 

Fullt starf Norðlingaskóli 110
Apply

Í Norðlingaskóla er lögð áhersla m.a. á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks.

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 520 nemendur í 1. – 10. bekk, staðsettur í fallegu einstöku umhverfi í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.

Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.

Helstu verkefni:

  • Skipuleggur nám og sinnir kennslu nemenda með sérþarfir í samvinnu við aðra fagaðila í unglingadeild, ásamt umsjónarkennurum og stoðþjónustu skólans.
  • Tekur þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Framhaldsmenntun í sérkennslu æskileg eða kennslureynsla á unglingastigi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum og unglingum.
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
  • Áhugi á rafrænum kennsluháttum.
  • Góð íslenskukunnátta er algjört skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn á íslensku, ásamt upplýsingum um nám og starfsreynslu, auk kynningarbréfs, í gegnum vef Reykjavíkurborgar þar sem starfið er auglýst.

Frekari upplýsingar um Norðlingaskóla er að finna á heimasíðu skólans: nordlingaskoli.is.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónína Rós Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri í s: 411-7640.

Apply