Til baka á starfasíðu

Kennari í stoðþjónustu á yngsta stigi

Melaskóli óskar eftir öflugum kennara til starfa við stoðþjónustu skólans. 

Fullt starf Melaskóli 107
Virkja

Melaskóli er rótgróinn grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 520 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á menntun og vellíðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góð samskipti. 

Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.

Við leitum að jákvæðum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, er annt um velferð þeirra og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Annast sérkennslu og stuðning við nemendur í samráði við kennara og annað fagfólk
  • Starfa í þverfaglegu teymi sem sér um skipulag og framkvæmd sérkennslu á yngsta stigi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk

Helstu menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla og þekking á sérkennslu og stuðningi í grunnskóla
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Góð íslenskukunnátta (C1)

Um er að ræða starf til framtíðar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. 

Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@reykjavik.is.

Virkja