Kennari í stoðþjónustu á yngsta stigi
Melaskóli óskar eftir öflugum kennara til starfa við stoðþjónustu skólans.
Melaskóli er rótgróinn grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 520 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á menntun og vellíðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góð samskipti.
Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.
Við leitum að jákvæðum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, er annt um velferð þeirra og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Annast sérkennslu og stuðning við nemendur í samráði við kennara og annað fagfólk
- Starfa í þverfaglegu teymi sem sér um skipulag og framkvæmd sérkennslu á yngsta stigi
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Helstu menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu
- Reynsla og þekking á sérkennslu og stuðningi í grunnskóla
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Góð íslenskukunnátta (C1)
Um er að ræða starf til framtíðar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@reykjavik.is.