Til baka á starfasíðu

Skrifstofustjóri Klettaskóla - starfsstöð Korpuskóli (Bakkastaðir 2)

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og leitum við að skrifstofustjóra með starfsstöð í Korpuskóla, Bakkastöðum 2, en þar verður opnuð unglingadeild haustið 2026.

Fullt starf Klettaskóli 105
Virkja

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og leitum við að skrifstofustjóra með starfsstöð í Korpuskóla, Bakkastöðum 2. Einkennisorð skólans eru "Menntun fyrir lífið".

Við leitum að skrifstofustjóra sem er tilbúinn að takast á við ýmis verkefni í nýjum skóla og verða þar með hluti af öflugu teymi frá 1. ágúst 2026. Skólastjóri er næsti yfirmaður skrifstofustjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð skrifstofustjóra eru m.a.:

  • Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofunnar, innkaup á námsbókum og stærri innkaupum rekstrarvara
  • Umsjón með fjármálum og bókhaldi skólans í samráði við skólastjóra
  • Móttaka og þjónusta við starfsfólk, nemendur, foreldra og gesti
  • Símsvörun og miðlun upplýsinga
  • Umsjón með vinnuveri fagfólks
  • Rafræn umsýsla og skjölun á gögnum
  • Umsjón með forfallaskráningu og skipulagi forfalla í samráði við skólastjórnendur
  • Umsjón með túlkaþjónustu
  • Sitja fundi stjórnenda og starfsmannafundi eftir því sem við á
  • Önnur tilfallandi verkefni sem skólastjórnendur fela skrifstofustjóra

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Góð þekking og reynsla af skrifstofustörfum
  • Góð tölvukunnátta (excel, word, bókhalds- og launakerfi)
  • Þekking og reynsla af Vinnustund er kostur
  • Reynsla af störfum með börnum er æskileg
  • Góð samskiptafærni og nákvæm vinnubrögð
  • Þjónustulund og fagleg framkoma
  • Stundvísi og áreiðanleiki er mikill kostur
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði (C1)

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Arndís Gunnarsdóttir elin.arndis.gunnarsdottir@reykjavik.is

Virkja