Skrifstofustjóri Klettaskóla - starfsstöð Korpuskóli (Bakkastaðir 2)
Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og leitum við að skrifstofustjóra með starfsstöð í Korpuskóla, Bakkastöðum 2, en þar verður opnuð unglingadeild haustið 2026.
Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og leitum við að skrifstofustjóra með starfsstöð í Korpuskóla, Bakkastöðum 2. Einkennisorð skólans eru "Menntun fyrir lífið".
Við leitum að skrifstofustjóra sem er tilbúinn að takast á við ýmis verkefni í nýjum skóla og verða þar með hluti af öflugu teymi frá 1. ágúst 2026. Skólastjóri er næsti yfirmaður skrifstofustjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð skrifstofustjóra eru m.a.:
- Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofunnar, innkaup á námsbókum og stærri innkaupum rekstrarvara
- Umsjón með fjármálum og bókhaldi skólans í samráði við skólastjóra
- Móttaka og þjónusta við starfsfólk, nemendur, foreldra og gesti
- Símsvörun og miðlun upplýsinga
- Umsjón með vinnuveri fagfólks
- Rafræn umsýsla og skjölun á gögnum
- Umsjón með forfallaskráningu og skipulagi forfalla í samráði við skólastjórnendur
- Umsjón með túlkaþjónustu
- Sitja fundi stjórnenda og starfsmannafundi eftir því sem við á
- Önnur tilfallandi verkefni sem skólastjórnendur fela skrifstofustjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Góð þekking og reynsla af skrifstofustörfum
- Góð tölvukunnátta (excel, word, bókhalds- og launakerfi)
- Þekking og reynsla af Vinnustund er kostur
- Reynsla af störfum með börnum er æskileg
- Góð samskiptafærni og nákvæm vinnubrögð
- Þjónustulund og fagleg framkoma
- Stundvísi og áreiðanleiki er mikill kostur
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði (C1)
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Arndís Gunnarsdóttir elin.arndis.gunnarsdottir@reykjavik.is