Þroskaþjálfi - Grandaskóli
Grandaskóli óskar eftir þroskaþjálfa.
Laust er til umsóknar starf þroskaþjálfa við Grandaskóla.
Löng starfslýsing
Laust er til umsóknar starf þroskaþjálfa við Grandaskóla.
Grandaskóli er staðsettur í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 340 nemendur í 1. - 7. bekk og fjöldi starfsfólks er um 50.
Einkunnarorð skólans eru jákvæðni, ábyrgð, vellíðan, árangur. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð. Í 1. - 3. bekk er stuðst við Byrjendalæsi, sem er samvirk nálgun í læsiskennslu.
Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Um er að ræða 80-100% starf.
Helstu verkefni
- Hefur umsjón með skipulagningu og framkvæmd á sérhæfðri þjálfun nemenda á yngra og miðstigi ásamt því að veita samstarfsmönnum og foreldrum fræðslu og ráðgjöf.
- Annast þjálfun nemenda í samráði við aðstoðarskólastjóra, verkefnastjóra sérkennslu, sérkennara og aðra kennara.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur
- Þroskaþjálfamenntun og leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi.
- Lipurð og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
- Reynsla þjálfun barna og ungmenna er æskileg.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu samfélagi fagfólks.
- Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi og frumkvæði.
- Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið (ETM Sjálfsmatsrammi)
Hlunnindi í starfi
- Menningar- og bókasafnskort.
- Samgöngustyrkur.
- Sundkort.
- Heilsuræktarstyrkur.
Frekari upplýsingar um starfið
- Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar um starfi veitir Katrín Ásta Hafsteinsdóttir, skólastjóri (katrin.asta.hafsteinsdottir@reykjavik.is) eða í síma 411 7120