Back to the jobs page

Þroskaþjálfi - Grandaskóli

Grandaskóli óskar eftir þroskaþjálfa.

Fullt starf Grandaskóli 107
Apply

Laust er til umsóknar starf þroskaþjálfa við Grandaskóla.

Löng starfslýsing

Laust er til umsóknar starf þroskaþjálfa við Grandaskóla.

Grandaskóli er staðsettur í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 340 nemendur í 1. - 7. bekk og fjöldi starfsfólks er um 50.

Einkunnarorð skólans eru jákvæðni, ábyrgð, vellíðan, árangur. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð. Í 1. - 3. bekk er stuðst við Byrjendalæsi, sem er samvirk nálgun í læsiskennslu.

Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Um er að ræða 80-100% starf.

Helstu verkefni

  • Hefur umsjón með skipulagningu og framkvæmd á sérhæfðri þjálfun nemenda á yngra og miðstigi ásamt því að veita samstarfsmönnum og foreldrum fræðslu og ráðgjöf. 
  • Annast þjálfun nemenda í samráði við aðstoðarskólastjóra, verkefnastjóra sérkennslu, sérkennara og aðra kennara. 
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki. 
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

  • Þroskaþjálfamenntun og leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi.
  • Lipurð og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Reynsla þjálfun barna og ungmenna er æskileg.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu samfélagi fagfólks.
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi og frumkvæði.
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið (ETM Sjálfsmatsrammi)

Hlunnindi í starfi

  • Menningar- og bókasafnskort.
  • Samgöngustyrkur.
  • Sundkort.
  • Heilsuræktarstyrkur.

Frekari upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfi veitir Katrín Ásta Hafsteinsdóttir, skólastjóri (katrin.asta.hafsteinsdottir@reykjavik.is) eða í síma 411 7120

Apply