Verkefnastjóri á deild gatna, lóða og opinna svæða
Umhverfis- og skipulagssvið leitar að verkefnastjóra á deild gatna lóða og opinna svæða.
Umhverfis- og skipulagssvið leitar að drífandi einstaklingi í stöðu verkefnastjóra á deild gatna, lóða og opinna svæða. Verkefnin krefjast mikillar þverfaglegrar samvinnu bæði innan fagsviða Reykjavíkurborgar sem og annarra hagsmunaaðila.
Verkefni deildarinnar eru meðal annars að hafa yfirumsjón með nýframkvæmdum, s.s. uppbyggingu íbúðahverfa og atvinnusvæða, viðhaldi og eflingu göngu- og hjólastígakerfis borgarinnar og endurgerð leik- og grunnskólalóða. Verkefnin eru afar fjölbreytt og með tengingu við Græna Planið, heildarstefnu borgarinnar í fjárfestingum og lykilverkefnum í borgarumhverfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórnun, skipulagning og stjórnun verkefna.
- Gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana, ásamt eftirfylgni framkvæmda og útboðsverka.
- Skoðun, yfirferð og samþykkt reikninga frá ráðgjöfum, verktökum og vegna aðkeypts efnis. Skoðun á stöðu einstakra verkefna í verkbókhaldi.
- Ábyrgð á úttektum, uppgjöri og gerð skilamats vegna framkvæmda.
- Samskipti/samráð við íbúa, hagsmunaðila, ráðgjafa, stofnanir, nefndir og ráð, skrifstofur og deildir innan og utan borgarkerfis um framkvæmdir einstakra verkefna.
- Upplýsingaveita um stöðu verkefna í gegnum Framkvæmdasjá, sem er opin almenningi til að miðla upplýsingum til íbúa og hagsmunaaðila.
- Vinna við hönnun, val á búnaði eins og við á, fyrir stofnanir og/eða opin leiksvæði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verk- eða tæknigreinum, byggingarfræði, arkitektúr, skipulagsfræða, landslagsarkitektúr eða á sviði umhverfisfræða.
- Framhaldsmenntun tengd málaflokki.
- Samskiptahæfni sem miðar að því að starfa í hóp og verkefnateymum.
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Haldbær reynsla af starfssviðinu kostur.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Hæfni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum og miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á algengum skrifstofu-, hönnunar- og teikniforritum.
- Íslenskukunnátta B2-C1 og enskukunnátta B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma .
Nánar um starfið
- Um er að ræða fjölbreytt og spennandi framtíðarstarf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu.
- Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
- Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar Gísli Valdimarsson með því að senda tölvupóst á Runar.Gisli.Valdimarsson@reykjavik.is.
- Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2026.