Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari - Rofaborg

Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Rofaborg í Árbæ. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við skemmtileg og krefjandi verkefni, vaxa í starfi og aðstoða litla fólkið sem hér dvelur við að þroskast og dafna. 

Fullt starf Leikskólinn Rofaborg 110
Sækja um

Um starfið

Leikskólakennari með leyfisbréf til kennslu óskast til starfa í leikskólann Rofaborg í Árbæ. Rofaborg er rótgróinn, fimm deilda leikskóli í hjarta Árbæjar. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að takast á við skemmtileg og krefjandi verkefni, vaxa í starfi og aðstoða litla fólkið sem hér dvelur við að þroskast og dafna. Rofaborg er líflegur starfsstaður þar sem lögð er áhersla á að nýta styrkleika hvers og eins svo að allir hafi tækifæri til að hafa áhrif á starfið. Leikur, hreyfing og sköpun er ríkur þáttur í starfi leikskólans sem og félagsfærniþjálfun, málörvun og læsi.

Ef ekki næst að ráða kennara í starfið kemur til greina að ráða starfsmann með reynslu og metnað fyrir kennslu og umönnun ungra barna.    

Einkunnarorð Rofaborgar eru leikur - gleði - vinátta.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna skv. starfslýsingu leikskólakennara.
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra.
  • Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
  • Samskipti og samvinna við foreldra.
  • Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
  • Hæfni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Ábyrgð og áreiðanleiki.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum er skilyrði.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
  • Frítt í sund í allar sundlaugar í Reykjavík
  • Íþróttastyrkur kr. 16.000.- eftir 6 mánuði í starfi
  • Afsláttur af leikskólagjaldi fyrir barn í leikskóla í Reykjavík
  • Forgangur fyrir barn í leikskóla í Reykjavík
  • Samgöngusamningur kr. 7.500- ef notaður er vistvænn ferðamáti að mestu leyti
  • Boðið er upp á heitan mat í hádeginu, morgunmat og síðdegishressingu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Upplýsingar um starfið veitir Guðlaug Kristinsdóttir leikskólastjóri í síma 411-3841 eða á gudlaug.kristinsdottir@reykjavik.is

Myndband úr starfi Rofaborgar - https://vimeo.com/315468193

Heimasíða Rofaborgar

Instagram - @rofaborg_leikskoli

Sækja um