Til baka á starfasíðu

Þar sem sólin skín! – tækifæri til að blómstra

Einn sólríkasti staður höfuðborgarinnar óskar eftir að ráða inn stuðningsfulltrúa í vaktavinnu í sumar, á íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í miðborg Reykjavíkur sem veitir sólarhringsþjónustu. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem gleðin er ávallt í fyrirrúmi og frábær starfsandi ríkir.

Fullt starf Íbúðakjarni Bríetartúni 26 105
Sækja um

Velferðarsvið óskar eftir að ráða metnaðarfulla starfsmenn á íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í Bríetartúni í sumar með möguleika á áframhaldandi starfi eftir sumarið. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaðan stuðning, þar sem unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og batamiðaða nálgun. Markmið þjónustunnar er að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt með áherslu á valdeflingu og aukin lífsgæði.

Um er að ræða 80% - 100% vaktavinnu, og er unnið á blönduðum dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Starfið er laust frá byrjun júní 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum í nánu samstarfi við deildarstjóra og forstöðumann.

Einstaklingsmiðaður stuðningur til sjálfshjálpar og samfélagslegrar þátttöku og virkni.

Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.

Veita stuðning í daglegum verkefnum líkt og heimilisþrif, matarinnkaup ofl.

Veita félagsskap með áherslu á vellíðan og virkni.

Vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa.

Unnið eftir stefnu Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk.

Hæfniskröfur

Góð almenn menntun.

Íslenskukunnátta B1-2 (samkvæmt samevrópskum matsramma um tungumálaviðmið).

Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum kostur.

Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuaðstæður.

Sveigjanleiki, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum.

Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára.

Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi í starfi

Hjá Reykjavíkurborg er unnið samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinnu og eftirfarandi hlunnindi eru í boði fyrir starfsfólk: Sjá hlunnindi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Katrín Erla G. Gunnarsdóttir forstöðumaður í tölvupósti:katrin.erlag.gunnarsdottir@reykjavik.is

Sækja um