Til baka á starfasíðu

Sérkennslustjóri - tímabundið starf

Leikskólinn Furuskógur óskar eftir metnaðarfullum og öflugum sérkennslustjóra sem brennur fyrir að efla nám, vellíðan og farsæld allra barna.

Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár, með möguleika á framhaldi.

Fullt starf Leikskólinn Furuskógur 108
Sækja um

Við leitum að metnaðarfullum og öflugum einstaklingi til að sinna starfi sérkennslustjóra.

Í starfinu felst að leiða og þróa sérkennslu, styðja við kennara og tryggja faglegt samstarf við foreldra og fagaðila.

Leikskólinn Furuskógur er starfræktur í tveimur húsum í Fossvoginum og liggur vel við samgöngum.

Einkunnarorð skólans eru Gleði, Vinsemd og Virðing, og er áhersla lögð á lýðræði, sköpun, útinám og lífsleikni í starfi með börnunum. Skólinn hlaut Regnbogavottun í apríl 2022.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Óskað er eftir einstaklingi með menntun og reynslu sem nýtist í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í skólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til starfsmanna.
  • Ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir þau börn sem njóta sérkennslu og hefur yfirumsjón með gerð verkefna fyrir þau.
  • Stýrir teymisvinnu vegna barna sem njóta sérkennslu og heldur utan um mál þeirra.
  • Veitir foreldrum og starfsfólki stuðning, fræðslu og ráðgjöf.

Unnið er í nánu samstarfi við stjórnendur, kennara og ýmsa sérfræðinga.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg
  • Reynsla af leikskólastarfi
  • Reynsla af sérkennslu æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð tölvukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði

Fríðindi í starfi

  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsfólks og afsláttur af leikskólagjöldum
  • Stytting vinnuvikunnar - 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
  • Frítt fæði á vinnutíma, grænmetis- og veganfæði í boði
  • Samgöngustyrkur
  • Menningarkort sem veitir aðgang aðsöfnum borgarinnar og ókeypis bókasafnskort
  • Heilsuræktarstyrkur og frítt í sundlaugar Reykjavíkur

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Brynjarsdóttir leikskólastjóri í síma 618 8933 eða tölvupósti furuskogur@reykjavik.is

Um 100% starf er að ræða og er það laust nú þegar. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.

Leikskólinn Furuskógur

við Áland

við Efstaland 28

108 Reykjavík

Heimasíða leikskólans

Sækja um