Til baka á starfasíðu

Kennari - Laufskálar

Kennari/leiðbeinandi óskast til starfa við Leikskólann Laufskála

Fullt starf Leikskólinn Laufskálar 112
Sækja um

Kennari óskast til starfa í leikskólanum Laufskálum, Laufrima 9, 112 Reykjavík.

Laufskálar er fjögurra deilda leiklistarleikskóli þar sem áhersla er lögð á leiklist og leikgleði. Markmiðið er ekki alltaf að setja upp stóra sýningu - en mikið er það nú gaman!

Í Laufskálum er unnið að markmiðum okkar í leiklist, framkomu, samskipti, vináttu, virk hlustun og margt fleira spennandi. Samvinna starfsfólks er lykilinn að góðum degi. Við þurfum fólk sem er gott í samskiptum, vill vinna inni jafnt sem úti og hefur gott vald á íslensku.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Fríðindi í starfi

  • Menningakort-bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Íslenska B1 skv. samevrópska tungumálarammanum

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Upplýsingar um starfið gefur Guðrún Rut Bjartmarsdóttir leikskólastjóri í síma 411 3880/663 5322 gudrun.rut.bjartmarsdottir@reykjavik.is

Upplýsingar á heimasíðu leikskólans

Sækja um