Sumarstarf í nýjum íbúðakjarna Sólvallagötu 79
Velferðarsvið óskar eftir stuðningsfulltrúum í sumarafleysingar í nýjan íbúðakjarna Sólvallagötu 79. Um er að ræða vaktavinnu, dag, kvöld nætur og helgarvaktir, þar sem unnið er aðra hverja helgi.
Íbúðakjarni fyrir fatlaða Sólvallagötu 79 óskar eftir stuðningsfulltrúum í sumarafleysingu. Þjónustan miðar að því að efla færni og auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg en ekki skilyrði.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Umhyggja og þolinmæði.
- Bílpróf kostur
- Íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Ýmis hlunnindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg en þau má sjá hér.
Fríðindi í starfi
· Sund og menningarkort Reykjavíkurborgar
· Heilsustyrkur
· Samgöngustyrkur
· 36 stunda vinnuvika
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Nánari upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður:
Aron Freyr Hermannsson í tölvupósti:
aron.freyr.hermannsson@reykjavik.is