Til baka á starfasíðu

Spennandi starf teymisstjóra í nýjum íbúðakjarna Sólvallagötu 79

Velferðarsvið óskar eftir framsýnum og metnaðarfullum teymisstjóra í nýjan íbúðakjarna Sólvallagötu 79.

Um er að ræða 100 % stöðu, dag, kvöld og helgarvaktir, þar sem unnið er eina helgi í mánuði.

Fullt starf Íbúðakjarni Sólvallagöu 79
Sækja um

Þjónustan miðar að því að efla færni og auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber faglega ábyrgð og hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa í sínu teymi.
  • Stýrir daglegum störfum annarra starfsmanna í samráði við forstöðumann.
  • Veitir leiðsögn um framkvæmd þjónustu og tekur virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu varðandi faglegt starf.
  • Gerir einstaklingsáætlanir í samvinnu við íbúa, starfsmenn og forstöðumann.
  • Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags- heilbrigðis- og/eða menntavísinda
  • Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum
  • Reynsla af stjórnun æskileg
  • Afburðahæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta B2 eða hærra (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Launakjör

Laun samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags

Ýmis hlunnindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg en þau má sjá hér.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður:

Aron Freyr Hermannsson í tölvupósti: aron.freyr.hermannsson@reykjavik.is

Sækja um