Til baka á starfasíðu

Sumarstarf í skemmtilegum íbúðakjarna í hjarta borgarinnar

Sumarstarf í skemmtilegum íbúðakjarna í hjarta borgarinnar.

Óskilgreint hlutfall Íbúðakjarni Einholti 6 101
Sækja um

Íbúðakjarninn Einholti 6 óskar eftir að ráða hresst og metnaðarfullt fólk í þjónustu við íbúa.

Einholt er búsetukjarni fyrir 6 manns í rúmgóðum íbúðum á besta stað í bænum. Unnið er á vöktum og er starfshlutfall umsemjanlegt.

Öflugur og samrýmdur starfsmannahópur aðstoðar íbúa eftir þörfum, í samræmi við hugmyndafræði sjálfstæðs lífs, valdeflingar og þjónandi leiðsagnar með áherslu á sjálfstæði, umhyggju, vellíðan og gleði. Góð hæfni í samskiptum og áhugi á hag annarra eru því lykileiginleikar fyrir starfsfólk.

Einholt liggur rétt fyrir ofan Hlemm og því er stutt í almenningssamgöngur og ýmis konar afþreyingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hlutverk stuðningsfulltrúa er að styðja og aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs og er markmið okkar að veita framúrskarandi þjónustu. Í því felst að aðstoða íbúa við daglega iðju, halda heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs.
  • Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun.
  • Áhugi á mannlegum margbreytileika og velferð fólks.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg en ekki skilyrði.
  • Íslenskukunnátta B1 skilyrði.
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Ökuréttindi æskileg en ekki skilyrði.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi

Nánari upplýsingar veitir Árni Viðar Þórarinsson, forstöðumaður í síma 617-3666 eða á netfanginu Arni.Vidar.Thorarinsson@reykjavik.is.

Sækja um