Til baka á starfasíðu

Leikskólastjóri í Austurborg

Staða leikskólastjóra í leikskólanum Austurborg er laus til umsóknar. Leitað er að leikskólakennara með farsæla stjórnunarreynslu og leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að leiða metnaðarfullt starf í Austurborg.

Fullt starf Leikskólinn Austurborg 103
Sækja um

Staða leikskólastjóra í leikskólanum Austurborg er laus til umsóknar. Austurborg er fjögurra deilda leikskóli við Háaleitisbraut 70, þar sem einkunnarorðin eru vil, get og kann. Leikskólinn vinnur í anda hugmyndafræði Reggio Emilia með áherslu á hreyfingu og skapandi starf. Austurborg er Leikur að læra skóli og hefur hlotið vottun sem slíkur. Leikur að læra er hugsað út frá þörfum barna til að leika og hreyfa sig og upplifa námsefnið í gegnum mismunandi skynfæri.

Í Austurborg er gott að vera og þar fer fram metnaðarfullt, skemmtilegt og gefandi starf. Leikskólinn er sífelldri þróun og mótun og lögð er áhersla á góðan starfsanda þannig að hver og einn fá notið sín í starfi. Um þrjátíu starfsmenn starfa í Austurborg. Leikskólinn er miðsvæðis, staðsettur við Háaleitisbraut, nálægt helstu samgönguæðum borgarinnar.

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Stjórnendur í leikskólum borgarinnar eru hluti af fjölmennu teymi fagfólks í öflugu lærdómssamfélagi.

Skólanámskrá leikskólans er í vinnslu og nýjum leikskólastjóra gefst tækifæri til að leiða mótun faglegs leikskólastarfs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar.
  • Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
  • Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsmenn.
  • Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum.
  • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
  • Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
  • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
  • Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskólastigi.
  • Farsæl reynsla af stjórnun 
  • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
  • Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
  • Lipurð og hæfni í samskiptum.
  • Sjálfstæði og frumkvæði.
  • Áhugi og reynsla af að leiða þróunarstarf.
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Nánari upplýsingar

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á starf í leikskólanum.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslends vegna Félags stjórnenda í leikskólum.

Um er að ræða 100% stöðu og verður ráðið ótímabundið.

Starfið er laust frá 1. maí nk. eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Valborg Hlín Guðlaugsdóttir, fagstjóri leikskóla í Norðurmiðstöð, í tölvupósti: valborg.hlin.gudlaugsdottir@reykjavik.is eða í síma: 693 9821.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Sækja um