Ígrundun um hinsegin og karlmennskuna

Nokkrar spurningar til að koma af stað umræðum um hinsegin málefni og karlmennskuna. Kveikja og verkefni í kynja- og hinseginfræðum.

Um verkefnið

Jafnrétti - Hinsegin - Karlmennskan

Tenging við menntastefnu: Félagsfærni

Gerð efnis: Verkefni

Markhópur: 13-16 ára

Viðfangsefni: Jafnrétti, Mannréttindi, Sjálfsmynd, Staðalmyndir, Hinsegin, Karlmennska

Ígrundun um hinsegin

1. Útskýrðu gagnkynhneigt forræði (gagnkynhneigð viðmið) og hvaða þýðingu það hefur fyrir hinsegin fólk.

2. Til hvers þarf öll þessi hinsegin hugtök? Hvaða tilgangi þjóna þau?

3. Hvað er kynrænt sjálfræði og hvað þýðir það?

4. Hversu mikið og á hvaða hátt birtist hinseginleikinn í námsefni og í dægurefni í dag? Hefur það breyst eitthvað á síðustu tíu árum? Er hinsegin fólk ósýnilegt í námsefni? Stjórna staðalmyndir því hvernig hinsegin fólk er sýnt í námsefni og dægurefni? Hvaða máli skiptir það hvernig hinsegin fólk birtist í námsefni og dægurefni?

Ígrundun um karlmennsku

  • 1. Hvernig er æskileg/heilbrigð karlmennska í þínum huga?

    2. Hvað er skaðleg karlmennska? – hvernig birtist hún?

    3. Af hverju er líklegt að fólk reiðist þegar skaðleg karlmennska er gagnrýnd?

    4. Hvað finnst þér um þetta allt. Hvernig líður þér að tala um karlmennskuna?