Markaðssala einstaklinga

Markaðssala einyrkja er leyfi fyrir um 5 fermetra svæði.

Hægt er að sækja um tímabundið söluleyfi á skilgreindum markaðssvæðum. 

Tímabil

Söluleyfi gilda frá 1. hvers mánaðar á tímabilinu  1. mars – 30. nóvember. 

Sala er heimiluð frá kl. 09:00‐21:00. 

Sækja þarf um leyfi fyrir tvo mánuði að lágmarki að undanskyldum nóvember og skal leiga greidd fyrir undirritun samnings.

Óskir um framlengingu sendist fyrir 15. hvers mánaðar á torgsala@reykjavik.is   

Markaðssvæði

Bernhöftstorfa, Lækjartorg, Ingólfstorg og Frakkland (garður efst á Frakkastíg) og getur leyfishafi flutt sig milli þessara staða að vild. 

Leyfishafa er gert skylt að víkja séu afnotaleyfi veitt vegna viðburða á ofangreindum svæðum.