Heimilisofbeldi og vinnustaðir Reykjavíkurborgar
Heimilisofbeldi hefur mikil áhrif á þolendur þess og líðan og afleiðingar koma einnig fram á vinnustað og geta verið margs konar. Gerendur ofbeldis tilheyra oftar en ekki vinnustöðum og oft erfitt og flókið að taka á slíku.
Leiðbeiningar fyrir þolendur
Um hvað eru þessar leiðbeiningar?
Þessum leiðbeiningum er ætlað að útskýra hvaða stuðningur er í boði hjá Reykjavíkurborg ef þú býrð við heimilisofbeldi. Ef þú býrð við heimilisofbeldi og það er að hafa áhrif á vinnuna þína þá getur reynst erfitt að tala við vinnuveitanda um það sem er að gerast.
Þú gætir fundið fyrir skömm eða óttast þín eigin viðbrögð ef þú segir frá eða hreinlega haft áhyggjur af því að þetta hafi áhrif á stöðu þína á vinnustaðnum.
Heilsa og öryggi starfsfólks er borginni mikilvægt. Reykjavíkurborg hefur einsett sér að styðja við starfsfólk sem býr við heimilisofbeldi það getur verið m.a. með auknum sveigjanleika eða launuðu leyfi.
Stjórnendur munu hlusta, þeir eiga ekki að dæma og það verður stutt við þær ákvarðarnir sem þú tekur.
Hvaða hjálp stendur þér til boða?
Það er mælt með því að þú hafir samband við fólk sem býr yfir þekkingu á heimilisofbeldi og veitir ráðgjöf og stuðning. Neðst er listi yfir ýmsar stofnanir og grasrótarhreyfingar sem gera það. Þú skalt velja þá ráðgjöf sem þér finnst henta þér best. Hafðu samt alltaf samband við 112 ef þú ert í mikilli hættu.
Ef þú óskar eftir því þá er hægt að fá stuðning frá Reykjavíkurborg. Þú getur farið til næsta yfirmanns eða leitað til mannauðs- og starfsumhverfissviðs borgarinnar ef þér finnst það þægilegra. Hvort þú greinir frá ofbeldinu á vinnustaðnum er alltaf þín ákvörðun en það gæti skipt máli sérstaklega ef ofbeldið er að hafa áhrif á vinnuna þína. Heimilisofbeldi getur haft áhrif á frammistöðu fólks í vinnu, framleiðni getur minnkað eða fólk mætir of seint vegna þess eða er með miklar fjarvistir.
Ef þú greinir frá ofbeldinu áttu að njóta stuðnings vinnuveitanda. Það getur einnig í einhverjum tilvikum skipt máli vegna öryggis þíns að láta vita af ofbeldinu. Ef þú greinir yfirmanni þínum frá heimilisofbeldi átt þú að:
- Mæta skilningi á því sem þú ert að ganga í gegnum og að þér sé gefinn tími til að ræða málin.
- Fá stuðning.
- Geta treyst á trúnað nema í tilvikum þar sem bráð hætta steðjar að.
- Geta treyst því að lögð sé áhersla á öryggi þitt.
Aðilinn sem þú kýst að ræða við á ekki að:
- Krefjast sönnunar fyrir ofbeldinu.
- Hafa samband við geranda.
- Neyða þig til að leita þér aðstoðar.
Ef þú kýst að greina frá ofbeldinu mun verða lögð áhersla á að:
- Tryggja öryggi þitt á vinnustaðnum.
- Koma til móts við þig í tengslum við ábyrgð, vinnuálag og annað tengt kröfum til þess starfs sem þú ert í. Slík aðstoð getur m.a. falið í sér launað leyfi eða aukinn sveigjanleika á vinnutíma- eða rými.
- Tryggja stafrænt öryggi á vinnustað.
Að greina frá heimilisofbeldi á ekki að hafa nein áhrif á framgang í starfi ef þú sinnir starfi þínu með þeim hætti sem ákveðið hefur verið. Fyllsta trúnaðar verður gætt en í einhverjum tilvikum getur reynst mikilvægt að greina öðru starfsfólki frá til þess að efla öryggi þitt og í einhverjum tilvikum þeirra öryggi en það á að gerast í samráði við þig og með þínu samþykki og við þær aðstæður fá aðeins þau sem þurfa að vita af ofbeldinu upplýsingar um það.
Ef gerandi sýnir ógnandi hegðun á vinnustaðnum eða beitir ofbeldi með því að nota tæki í eigu vinnunnar á það að vera skráð þegar því er við komið og þeim upplýsingum haldið til haga. Þær upplýsingar eru notaðar til að færa sönnur á ofbeldið ef þarf. Sé nálgunarbann brotið á vinnustað þá er það líka skráð.
Rannsóknir sýna að falskar ásakanir um heimilisofbeldi eru afar sjaldgæfar. Ef þú kýst að greina vinnuveitanda frá ofbeldi átt þú að mæta skilningi og þér á að vera trúað. Ef hins vegar kemur í ljós að ásakanir þínar eiga ekki við rök að styðjast og að vinnuveitandi hefur komið til móts við þig þá leiðir það af sér trúnaðarbrest ykkar á milli.
Fyrir samstarfsfólk
Það getur verið erfitt fyrir fólk á vinnustað að tala um það ofbeldi sem það býr við. Velji brotaþoli að gera það þá er stuðningur samstarfsfólks mjög mikilvægur. Vert er að hafa í huga að gerendur eru stundum búnir að einangra brotaþola og þá getur vinnustaðurinn verið mikilvæg líflína.
Samstarfsfólk segir frá ofbeldi
Hér á eftir eru nokkur atriði sem hafa þarf í huga í samskiptum þegar samstarfsmanneskja segir frá ofbeldi sem hún/hann/hán býr við:
Sýndu skilning, ekki dæma brotaþola fyrir að hafa ekki komið sér í burtu eða hvað annað sem þessu tengist.
Sýndu stuðning, láttu vita að þú sért til staðar þurfi viðkomandi á þér að halda.
- Haltu trúnað ef eftir því er óskað.
- Leggðu áherslu á öryggi.
- Gefðu viðkomandi tíma og hlustaðu.
- Farðu ekki fram á að viðkomandi færi sönnur fyrir ofbeldinu.
- Ekki hafa samband við gerendann, það getur skapað aukna hættu fyrir brotaþola og sett þig í hættu.
- Ekki þvinga viðkomandi til að leita sér aðstoðar, hver og einn þarf að finna þá þörf sjálf/sjálfur/sjálft.
- Ekki ganga inn í það hlutverk að vera ráðgjafi. Ef viðkomandi eða önnur samstarfsmanneskja er í bráðri hættu hringdu í 112.
Rannsóknir sýna að konur verða frekar fyrir ítrekuðu heimilisofbeldi en menn en það er samt mikilvægt að hafa í huga að menn verða einnig fyrir heimilisofbeldi og ofbeldi á sér einnig stað í hinsegin samböndum.
Annað sem þarf að hafa í huga:
Ef brotaþoli hefur rætt ofbeldið við þig sem samstarfsmanneskju en finnst óþægilegt að ræða málið við yfirmann þá getur verið gott að stinga upp á því að brotaþoli ræði við einhvern frá mannauðs- og starfsumhverfissviði eða einhvern á vinnustaðnum sem hefur sérþekkingu á málefninu. Öll slík skref þarf að taka í samráði við brotaþola.
Að ræða málið við yfirmann eða aðra á vinnustað getur verið lykilatriði, bæði til þess að hægt sé að bæta öryggi viðkomandi á vinnustað sem getur í sumum tilvikum verið nauðsynlegt en einnig getur ofbeldið verið skýring á því að viðkomandi hefur ekki staðið sig jafn vel í vinnu og annars. Það er alltaf mælt með að brotaþoli hafi samband við ráðgjafa sem eru sérhæfðir í heimilisofbeldi. Ákvörðunin þarf hins vegar allt að vera brotaþola.