Hraunbær 105
Félagsstarf
Hraunbær 105
110 Reykjavík
Opnunartími
Félagsstarfið í Hraunbæ 105 er opið alla virka daga kl. 8:30–16:00.
- Hádegismatur kl. 11:30–12:30 alla virka daga (matarpöntun þarf að berast fyrir kl. 13 daginn áður)
- Veitingasala miðast við dagskrá hverju sinni
Þjónusta
- Snyrtistofa Helgu (snyrti- og fótaaðgerðafræðingur og nudd) - sími 698 4938
- Hársnyrtistofa Kiddýar - sími 821 8226
Strætó
Strætisvagnar sem stoppa nálægt eru leiðir 5, 12, 16 og 24.
Um félagsstarfið
Starfræktar eru 17 félagsmiðstöðvar víðsvegar um borgina sem eru opnar Reykvíkingum á öllum aldri. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja frumkvæði og hæfileika hvers og eins. Hádegisverður er í boði á öllum þessum stöðvum og kaffiveitingar. Að auki bjóða flestar félagsmiðstöðvar upp á baðþjónustu. Hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofur eru einnig starfræktar á mörgum stöðvunum.
Hver stöð býður upp á sína eigin dagskrá sem samanstendur af ýmsum spennandi hlutum. Sem dæmi má nefna: vinnustofur, hagleikssmiðjur, listasmiðjur og klúbbastarf ýmiskonar, spilamennsku, skoðunarferðir, dans og leikfimi. Síðan eru ýmsir viðburðir árlegir og/eða tilfallandi, svo sem grillveisla, haustfagnaður og þorrablót. Lögð er áhersla á sjálfsprottið félagsstarf og hver og einn getur haft áhrif á þróun þess.
Um er að ræða þjónustu sem er opin öllum Reykvíkingum án sérstakra skilyrða. Ekki þarf að sækja sérstaklega um þátttöku í félagsstarfi, aðeins að mæta á staðinn. Ef fyrirhuguð er þátttaka í ákveðnum námskeiðum eða ferðum þarf að skrá hana.