Vöktun strandsjávar

Helstu uppsprettur mengunar í strandsjó í Reykjavík eru ofanvatn/yfirföll dælustöðva, rangar tengingar skólplagna, náttúrulegur uppruni – fuglar og dýr og losun skólps frá skipum og smábátum.

Regluleg vöktun

Frá því í apríl 2003 hafa örverufræðileg gæði strandsjávar í Reykjavík verið vöktuð. Sýni eru tekin á 12 stöðum meðfram strandlengjunni og fer vöktunin fram frá apríl til október hvert ár. Einnig vakta Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Orkuveita Reykjavíkur þynningarsvæði viðtaka skolphreinsistöðvanna.

Sjá sýnatökustaði

Niðurstöður

Mánaðarlegar niðurstöður mælinga og ársniðurstöður

Vöktunarskýrslur

Niðurstöður forgangsefnasýnatöku

Regluverk

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vaktar reglubundið strandsjó borgarinnar en eitt af hlutverkum heilbrigðisnefnda er að fylgjast með að ákvæði reglugerðar nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns séu uppfyllt og reglugerðar 798/1999 um fráveitur og skólp sé framfylgt. 

Vöktunarþættir (skv. rgl. 796/1999) og viðmið

Þeir þættir sem vaktaðir eru: hitastig, saurkólí/enterókokkar. Skv. reglugerð nr. 796/1999 fyrir örverumengun telst ásættanlegt ef vötn falla í I-II flokk (sjá nánar um umhverfismörk fyrir mismunandi efni í fylgiskjali reglugerðar nr. 796/1999).

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur

Fyrirspurnir og/eða ábendingar