Gjaldskrá sorphirðu

Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg og er gjaldskráin birt í Stjórnartíðindum. 1374/2025

Einfaldaða útgáfu gjaldskrár sorphirðu má sjá hér að neðan.

Ílát fyrir blandaðan heimilisúrgang

Tegund íláts Fjarlægð frá sorphirðubíl Ílát á ári
120 l tunna Minna en 15 metra 49.800 kr.
120 l tunna Meira en 15 metra 59.800 kr.
240 l tunna Minna en 15 metra 70.200 kr.
240 l tunna Meira en 15 metra 80.200 kr.
360 l tunna Minna en 15 metra 105.300 kr.
360 l tunna Meira en 15 metra 115.300 kr.
660 l grátt ker Minna en 15 metra 193.050 kr.
660 l grátt ker Meira en 15 metra 220.550 kr.
    Hver losun
3 m³ djúpgámur   15.300 kr
4 m³ djúpgámur   18.800 kr.
5m³ djúpgámur   22.100 kr.

Ílát fyrir pappír

Tegund íláts Fjarlægð frá sorphirðubíl Ílát á ári
240 l tunna Minna en 15 metra 7.500 kr.
240 l tunna Meira en 15 metra 10.700 kr.
360 l tunna, Minna en 15 metra 11.250 kr.
360 l tunna Meira en 15 metra 14.450 kr.
660 l ker Minna en 15 metra 20.625 kr.
660 l ker Meira en 15 metra 29.425 kr.
    Hver losun
3 m³ djúpgámur   300 kr.
4 m³ djúpgámur   350 kr.
5 m³ djúpgámur   400 kr.

Ílát fyrir plast

Tegund íláts Fjarlægð frá sorphirðubíl Ílát á ári
240 l tunna Minna en 15 metra 5.900 kr.
240 l tunna Meira en 15 metra 9.100 kr.
360 l tunna Minna en 15 metra 8.850 kr.
360 l tunna Meira en 15 metra 12.050 kr.
660 l ker Minna en 15 metra 16.225 kr.
660 l ker Meira en 15 metra 25.025 kr.
    Hver losun
3 m³ djúpgámur   300 kr.
4 m³ djúpgámur   300 kr.
5 m³ djúpgámur   300 kr.

Ílát fyrir matarleifar

Tegund íláts Fjarlægð frá sorphirðubíl Ílát á ári
140 l tunna Minna en 15 metra 17.900 kr.
140 l tunna Meira en 15 metra 27.900 kr.
    Hver losun
3 m³ djúpgámur   4.600 kr.

Ílát fyrir tvískipt ílát

Tegund íláts Fjarlægð frá sorphirðubíl Ílát á ári
240 l tunna fyrir heimilisúrgang (60%) og matarleifar (40%) Minna en 15 metra 52.000 kr.
240 l tunna fyrir heimilisúrgang (60%) og matarleifar (40%) Meira en 15 metra 62.000 kr.
240 l tunna fyrir pappírsefni (60%) og plast (40%)   Minna en 15 metra 10.000 kr.
240 l tunna fyrir pappírsefni (60%) og plast (40%) Meira en 15 metra 13.200 kr.

 

Gjaldi er ætlað að standa undir kostnaði við ílát, hirðu og meðhöndlun úrgangs. 

Gjöld og skýringar:

15 metra reglan

Ef sorphirðufólk þarf að sækja ílát lengra en 15 metra frá sorpbíl bætist viðbótargjald við. 

Gjald fyrir umfram úrgang

Ef tunnurnar eru fullar fyrir losunardag er hægt að kaupa merkta poka undir umframúrgang eða fara með hann á grenndar- eða endurvinnslustöðvar.

  • Merktir pokar fyrir tilfallandi, umfram blandaðan úrgang: 2.630 kr./stk.

Athugaðu að til þess að tilfallandi umframúrgangur sem rúmast ekki í ílátum sé hirtur þarf hann að vera í sérmerktum pokum. Þá getur þú keypt í þjónustuveri Reykjavíkur í Borgartúni 12-14.

Gjald fyrir aukalosun

 

  • Gjald fyrir aukalosun: 16.050 kr./ferð auk 3.220 kr./ílát sem losað er.
  • Gjald fyrir aukalosun djúpgáma: 16.050 kr./ferð, auk losunargjalds djúpgáma hér að framan.
  • Gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva: 22.800 kr./íbúð. Gjaldi vegna grenndar- og endurvinnslustöðva er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar í rekstri grenndar- og endurvinnslustöðva SORPU bs.
  • Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu, akstur og skráning íláta, er 4.300 kr. fyrir hvert sinn sem óskað er breytinga.

Gjald vegna reksturs endurvinnslustöðva

Endurvinnslustöðvagjald er lagt á hverja íbúð í Reykjavík til þess að standa undir hlutdeild borgarinnar í rekstri endurvinnslustöðva Sorpu.

Gjald fyrir meðhöndlun úrgangs

Gjald fyrir meðhöndlun úrgangs er lagt á með heimild í 2. mgr 23.gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs með síðari breytingum og 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

Gjald fyrir sorphirðu við heimili miðast við fjölda og stærð sorpíláta við hverja húseign, losunartíðni þeirra, tegund úrgangs og vegalengd sem draga þarf sorpílát.

Í fjöleignarhúsum er gjöldunum skipt eftir hlutfallstölu eigenda í viðkomandi sameign sbr. 43. og 45. gr. laga um fjöleignarhús nr. 26/1994.

Gjald vegna grenndar- og endurvinnslustöðva Sorpu er lagt á sem fast gjald á hverja íbúð.

Sé ílátum fjölgað, fækkað eða losunartíðni breytt á árinu miðast gjaldið við þá viku sem breytingarnar fara fram. Sé ílátum fjölgað eða fækkað er innheimt gjald fyrir akstur og skráningu.

Álagning á gjaldi fyrir meðhöndlun úrgangs er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfs- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá álagningu.

Nánari upplýsingar og aðstoð má fá í síma 411-1111 og/eða með því að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is.