Furugerði 1

Félagsstarf

Furugerði 1
108 Reykjavík

""

Opnunartími

Félagsstarfið í Furugerði 1 er opið alla virka daga kl. 9:00–16:00

  • Hádegismatur kl. 11:30–12:30 alla daga (matarpöntun þarf að berast fyrir kl. 13 daginn áður)
  • Síðdegiskaffi kl. 14:30–15:30 alla daga

Þjónusta

  • Baðþjónusta - sími 411 2740
  • Fótaaðgerðastofa Rósu - sími 588 2232

Strætó

Strætisvagnar sem stoppa nálægt eru leiðir 2, 11, 14 og 18.

Um félagsstarfið

Starfræktar eru 17 félagsmiðstöðvar víðsvegar um borgina sem eru opnar Reykvíkingum á öllum aldri. Markmið  félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja frumkvæði og hæfileika hvers og eins. Hádegisverður er í boði á öllum þessum stöðvum og kaffiveitingar. Að auki bjóða flestar félagsmiðstöðvar upp á baðþjónustu. Hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofur eru einnig starfræktar á mörgum stöðvunum.

Hver stöð býður upp á sína eigin dagskrá sem samanstendur af ýmsum spennandi hlutum. Sem dæmi má nefna: vinnustofur, hagleikssmiðjur, listasmiðjur og klúbbastarf ýmiskonar, spilamennsku, skoðunarferðir, dans og leikfimi. Síðan eru ýmsir viðburðir árlegir og/eða tilfallandi, svo sem grillveisla, haustfagnaður og þorrablót. Lögð er áhersla á sjálfsprottið félagsstarf og hver og einn getur haft áhrif á þróun þess.

Um er að ræða þjónustu sem er opin öllum Reykvíkingum án sérstakra skilyrða. Ekki þarf að sækja sérstaklega um þátttöku í félagsstarfi, aðeins að mæta á staðinn. Ef fyrirhuguð er þátttaka í ákveðnum námskeiðum eða ferðum þarf að skrá hana.