Stafrænt ráð - Stafrænt ráð miðvikudaginn 11. febrúar 2026 nr. 67

Stafrænt ráð - Stafrænt ráð miðvikudaginn 11. febrúar 2026 nr. 67

Stafrænt ráð

Ár 2026, 11. febrúar, var haldinn 67. fundur stafræns ráðs. Fundurinn hófst í Höfðatorgi kl. 13:30. Eftirtalin voru komnir til fundar í fundarherberginu Hofi: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Björn Gíslason og Kristinn Jón Ólafsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:   Sandra Hlíf Ocares. Jafnframt eftirtalið starfsfólk þjónustu- og nýsköpunarsviðs: Óskar Jörgen Sandholt og Eva Pandora Baldursdóttir. Sólveig Skaftadóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Kynning fer fram á upplýsingatækniverðlaunum Ský 2026 sem þjónustu- og nýsköpunarsvið hlaut 7. febrúar. ÞON26020005.

    Stafrænt ráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Stafrænt ráð fagnar því að þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar hlaut UT-verðlaun Ský 2026 fyrir bestu opinberu stafrænu þjónustuna. Viðurkenningin er skýr staðfesting á markvissri vinnu sviðsins við að samræma þjónustuumbreytingu og stafræna þróun þvert á fagsvið borgarinnar, með notendahönnun og gagnadrifinni ákvörðunartöku að leiðarljósi. Árangurinn birtist í mælanlegum umbótum: Einfaldari ferlum, betra aðgengi og aukinni samfellu í þjónustu, þar sem meiri tími færist frá umsýslu yfir í virði fyrir íbúa. Meðal lausna sem dómnefnd nefnir sérstaklega er Veita, sameiginlegt umsóknakerfi um fjárhagsaðstoð, SkólaBúi í þágu farsældar barna, notendavæn gervigreindaraðstoð á vef sem hefur dregið úr álagi í þjónustuveri, og innleiðing stafræns vinnuafls til sjálfvirknivæðingar síendurtekinna verkefna. Stafrænt ráð þakkar öflugu starfsfólki þjónustu- og nýsköpunarsviðs og öðru starfsfólki borgarinnar innilega fyrir framsækni og hugrekki í sínu starfi. Með þessa nálgun að leiðarljósi byggjum við framtíðarborgina – skref fyrir skref – í takt við bestu alþjóðlegu starfsvenjur.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram heimildarbeiðni um að hefja verkefnið „Mannauðs- og launakerfi - fasi 2". Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON24120004.

    Samþykkt.

    Birgir Lúðvíksson og Salvör Gyða Lúðvíksdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.  

    - Kl. 13:38 tekur Einar Sveinbjörn Guðmundsson sæti á fundinum.

  3. Lögð fram heimildarbeiðni um að hefja vinnu við innleiðingu á stafrænu borgarkorti. Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON24100032.

    Samþykkt.

    Stafrænt ráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Stafrænt ráð styður heils hugar að hefja innleiðingu stafræns borgarkorts fyrir þjónustur menningar- og íþróttasviðs. Með borgarkortinu sameinum við aðgang að þjónustu sem í dag krefst þriggja ólíkra plastkorta og færum íbúum og gestum nútímalegri og þægilegri þjónustu. Lausnin er þegar komin í rekstur, samþættingar við lykilkerfi að klárast og því unnt að hefja innleiðingu á 17 þjónustustöðum, þar á meðal sundlaugum, söfnum og Ylströndinni. Verkefnið er mikilvægur þáttur í stafrænni vegferð borgarinnar: Dregur úr álagi í framlínu með einfaldari ferlum og aukinni sjálfsafgreiðslu, eykur gagnsæi um virkar áskriftir og býr til rými fyrir þjónustuumbreytingu á starfsstöðum. Innleiðingin styður auk þess við Græna planið með minni plastnotkun og lægra kolefnisspori.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram heimildarbeiðni um að innleiða reglugátt, miðlægan reglugrunn Reykjavíkurborgar. Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON26010013.

    Samþykkt.

    Agnes Guðjónsdóttir tekur sæti undir þessum lið.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á stöðu skjalamála hjá Reykjavíkurborg 2026. ÞON23110040.

    Óskar Þór Þráinsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    - Kl. 14:28 víkur Kristinn Jón Ólafsson af fundinum og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns tekur sæti í hans stað með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  6. Lagðar fram reglur um upplýsinga- og skjalastjórn. ÞON23110040.

    Samþykkt.

    Óskar Þór Þráinsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 14:42

Dóra Björt Guðjónsdóttir Andrea Helgadóttir

Árelía Eydís Guðmundsdóttir Björn Gíslason

Einar Sveinbjörn Guðmundsson Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

Sandra Hlíf Ocares

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð stafrænt ráð 67