Stafrænt ráð - Stafrænt ráð miðvikudaginn 11. febrúar 2026 nr. 67
Stafrænt ráð
Ár 2026, 11. febrúar, var haldinn 67. fundur stafræns ráðs. Fundurinn hófst í Höfðatorgi kl. 13:30. Eftirtalin voru komnir til fundar í fundarherberginu Hofi: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Björn Gíslason og Kristinn Jón Ólafsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Sandra Hlíf Ocares. Jafnframt eftirtalið starfsfólk þjónustu- og nýsköpunarsviðs: Óskar Jörgen Sandholt og Eva Pandora Baldursdóttir. Sólveig Skaftadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Kynning fer fram á upplýsingatækniverðlaunum Ský 2026 sem þjónustu- og nýsköpunarsvið hlaut 7. febrúar. ÞON26020005.
Stafrænt ráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Stafrænt ráð fagnar því að þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar hlaut UT-verðlaun Ský 2026 fyrir bestu opinberu stafrænu þjónustuna. Viðurkenningin er skýr staðfesting á markvissri vinnu sviðsins við að samræma þjónustuumbreytingu og stafræna þróun þvert á fagsvið borgarinnar, með notendahönnun og gagnadrifinni ákvörðunartöku að leiðarljósi. Árangurinn birtist í mælanlegum umbótum: Einfaldari ferlum, betra aðgengi og aukinni samfellu í þjónustu, þar sem meiri tími færist frá umsýslu yfir í virði fyrir íbúa. Meðal lausna sem dómnefnd nefnir sérstaklega er Veita, sameiginlegt umsóknakerfi um fjárhagsaðstoð, SkólaBúi í þágu farsældar barna, notendavæn gervigreindaraðstoð á vef sem hefur dregið úr álagi í þjónustuveri, og innleiðing stafræns vinnuafls til sjálfvirknivæðingar síendurtekinna verkefna. Stafrænt ráð þakkar öflugu starfsfólki þjónustu- og nýsköpunarsviðs og öðru starfsfólki borgarinnar innilega fyrir framsækni og hugrekki í sínu starfi. Með þessa nálgun að leiðarljósi byggjum við framtíðarborgina – skref fyrir skref – í takt við bestu alþjóðlegu starfsvenjur.
Fylgigögn
-
Lögð fram heimildarbeiðni um að hefja verkefnið „Mannauðs- og launakerfi - fasi 2". Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON24120004.
Samþykkt.
Birgir Lúðvíksson og Salvör Gyða Lúðvíksdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 13:38 tekur Einar Sveinbjörn Guðmundsson sæti á fundinum.
-
Lögð fram heimildarbeiðni um að hefja vinnu við innleiðingu á stafrænu borgarkorti. Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON24100032.
Samþykkt.
Stafrænt ráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Stafrænt ráð styður heils hugar að hefja innleiðingu stafræns borgarkorts fyrir þjónustur menningar- og íþróttasviðs. Með borgarkortinu sameinum við aðgang að þjónustu sem í dag krefst þriggja ólíkra plastkorta og færum íbúum og gestum nútímalegri og þægilegri þjónustu. Lausnin er þegar komin í rekstur, samþættingar við lykilkerfi að klárast og því unnt að hefja innleiðingu á 17 þjónustustöðum, þar á meðal sundlaugum, söfnum og Ylströndinni. Verkefnið er mikilvægur þáttur í stafrænni vegferð borgarinnar: Dregur úr álagi í framlínu með einfaldari ferlum og aukinni sjálfsafgreiðslu, eykur gagnsæi um virkar áskriftir og býr til rými fyrir þjónustuumbreytingu á starfsstöðum. Innleiðingin styður auk þess við Græna planið með minni plastnotkun og lægra kolefnisspori.
Fylgigögn
-
Lögð fram heimildarbeiðni um að innleiða reglugátt, miðlægan reglugrunn Reykjavíkurborgar. Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON26010013.
Samþykkt.
Agnes Guðjónsdóttir tekur sæti undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stöðu skjalamála hjá Reykjavíkurborg 2026. ÞON23110040.
Óskar Þór Þráinsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 14:28 víkur Kristinn Jón Ólafsson af fundinum og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns tekur sæti í hans stað með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lagðar fram reglur um upplýsinga- og skjalastjórn. ÞON23110040.
Samþykkt.
Óskar Þór Þráinsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 14:42
Dóra Björt Guðjónsdóttir Andrea Helgadóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir Björn Gíslason
Einar Sveinbjörn Guðmundsson Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
Sandra Hlíf Ocares
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð stafrænt ráð 67