Stafrænt ráð
Ár 2025, 26. nóvember, var haldinn 63. fundur stafræns ráðs. Fundurinn hófst í Hofi kl. 13:30. Eftirtalin voru komnir til fundar í fundarherberginu: Alexandra Briem, Einar Sveinbjörn Guðmundsson, Kristinn Jón Ólafsson og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Sandra Hlíf Ocares og Þorkell Sigurlaugsson. Jafnframt eftirtalið starfsfólk þjónustu- og nýsköpunarsviðs: nýsköpunarsviðs: Óskar Jörgen Sandholt. Sólveig Skaftadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram leiðrétting á birtingu PDF skjals fundargerðar dags. 12.11.2025.
-
Fram fer kynning á stafrænum byggingarleyfum. ÞON25080019
Kristín Björg Sverrisdóttir og Kristjana Nanna Jónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Stafrænt ráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Stafrænt ráð Reykjavíkurborgar styður áframhaldandi stafvæðingu byggingarleyfisumsókna sem hófst innan Reykjavíkur árið 2022 og hefur m.a. bætt yfirsýn, gagnsæi, öryggi og þjónustuna út á við. Þessar umbætur hafa jafnframt dregið úr álagi á starfsfólk byggingarfulltrúa og stuðlað að skýrari verkferlum þar sem ábyrgð hvers hlutaðeigandi aðila er vel skilgreint. Með auknu samstarfi og innleiðingu á fyrsta fasa á nýju umsóknarviðmóti HMS í september er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu viðmótið er orðið notendavænt í takt við þjónustustefnu borgarinnar. Við fögnum þeim árangri sem náðst hefur og lýsum yfir stuðningi við framhald verkefnisins við þróun og innleiðingu á næsta fasa á afgreiðsluviðmóti og áframhaldandi samstarfi.
Fylgigögn
-
Lagt fram ákall frá Almannarómi eftir heimildum um raunverulegu málnotkun sem á sér stað í dag. ÞON25110035
Samþykkt
Ásta Þöll Gylfadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga stafræns ráðs um aukið samstarf Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga á sviði stafrænnar þróunar. ÞON25110033
Afgreiðslu frestað.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á skýrslu um kortlagningu tækifæra í hagnýtingu gervigreindar með Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. ÞON25080019
Brynjólfur Borgar Jónsson og Hildigunnur Hafsteinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fundi slitið kl. 15:27
Alexandra Briem Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Einar Sveinbjörn Guðmundsson Kristinn Jón Ólafsson
Pétur Marteinn Urbancic Tómasson Sandra Hlíf Ocares
Þorkell Sigurlaugsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð stafræns ráðs frá 26. nóvember 2025