No translated content text
Öldungaráð
Ár 2021, mánudaginn 6. desember var haldinn 62. fundur öldungaráðs Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:35. Fundinn sat Berglind Eyjólfsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Ingibjörg Sverrisdóttir, Viðar Eggertsson, Ólafur Kr. Guðmundsson, Jóhann Birgisson, Baldur Magnússon og Rannveig Ernudóttir. Einnig sat fundinn Berglind Magnúsdóttir.
Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer umræða um framtíðarsýn velferðarsviðs um byggingu hjúkrunarheimila R21040307
Öldungaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Öldungaráð Reykjavíkur fagnar því að hjúkrunarheimili rísi við Mosaveg í Reykjavík og ítrekar mikilvægi þess að ekki verði frekari tafir á því verkefni. Miðað við þann fjölda fólks sem bíður á Landspítalanum eftir að komast á hjúkrunarheimili með samþykkt færni- og heilsumat er mikilvægt er að nýtt hjúkrunarheimili rísi í Reykjavík.
- Kl. 10.05 tekur Ingibjörg Óskarsdóttir sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði.
-
Lagt fram erindi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, dags. 21. nóvember 2021, um ráðstöfun styrks til velferðarsviðs. MSS21120013
Vísað til umsagnar velferðarsviðs.- Kl. 10.15 tekur Anna Kristinsdóttir sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Lagt fram fundadagatal öldungaráðs vor 2022. R20090061
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um störf öldungaráðs vor 2022. R21110047
Fundi slitið klukkan 10:28
PDF útgáfa fundargerðar
oldungarad_0612.pdf