Öldungaráð - Fundur nr. 26

Öldungaráð 

Ár 2018, miðvikudaginn 18. apríl var haldinn 26. fundur öldungaráðs Reykjavíkurborgar.  Fundurinn var haldinn í Bárubúð og hófst kl. 10.00. Fundinn sátu Guðrún Ágústsdóttir, Kjartan Magnússon, Sjöfn Ingólfsdóttir, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Anna Kristinsdóttir og Elísabet Pétursdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1.    Fram fer kynning á verkefninu Saman gegn ofbeldi og lögð fram drög að erindisbréfi um 
stofnun starfshóps um heimilisofbeldi gegn öldruðum. 

Halldóra Gunnarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

-    Kl. 10.30 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum.

2.    Fram fer kynning á verkefninu Aldursvænar borgir. 

Þórhildur Egilsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

3.    Fram fer kynning á stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum innflytjenda, flóttafólks og 
umsækjenda um alþjóða vernd 2018-20120. R 17060134

Elín Oddný Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

4.    Fram fer umræða um opin fund öldungaráðs sem fór fram 10. apríl s.l. Eldri 
innflytjendur – Hver er staða þeirra. Hver eru næstu skref? 
Samþykkt að fela formanni að útbúa tillögu til borgarráðs.

5.    Fram fer kynning á fréttum af vettvangi velferðarsviðs. 

6.    Fram fer kynning á nýjum reglum við úthlutun á þjónustuíbúðum. 

Fundi slitið kl. 12.07

Guðrún Ágústsdóttir

Sjöfn Ingólfsdóttir    Kjartan Magnússon
Þórunn Sveinbjörnsdóttir