Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 83

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, föstudaginn 4. desember, var haldinn 83. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Bjarni Brynjólfsson, Dís Sigurgeirsdóttir, Ebba Schram, Helgi Grímsson, Huld Ingimarsdóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óli Jón Hertervig, Ólöf Örvarsdóttir, Ólöf Marín Úlfarsdóttir, Óskar Sandholt, Ómar Einarsson, Pétur Ólafsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson. 
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Dagný Ingadóttir. 

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 3. desember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Rætt um skipulag bólusetninga í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Teymi hefur verið skipað sem sér um skipulagið fyrir hönd borgarinnar: 

    Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari 
    Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar 
    Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
    Óli Jón Hertervig, skrifstofustjóri eignaskrifstofu 
    Lóa Birna Birgisdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og starfumhverfissviðs 
    Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, eða annar fulltrúi VEL
    Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri almannavarna á höfuðborgarsvæðinu, er tengiliður hópsins. 

  3. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir upplýsir um stöðu mála á velferðarsviði. 
    c.    Ómar Einarsson upplýsir um stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði 
    d.    Óskar Sandholt og Dagný Ingadóttir fara yfir stöðu mála varðandi stjórnsýsluhúsin, stefnt að því að opna í síðasta lagi 10. desember ef sóttvarnarreglur leyfa. 

Fundi slitið 9:30

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 4.12.2020 - prentvæn útgáfa