Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar
Ár 2020, föstudaginn 4. desember, var haldinn 83. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Bjarni Brynjólfsson, Dís Sigurgeirsdóttir, Ebba Schram, Helgi Grímsson, Huld Ingimarsdóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óli Jón Hertervig, Ólöf Örvarsdóttir, Ólöf Marín Úlfarsdóttir, Óskar Sandholt, Ómar Einarsson, Pétur Ólafsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
Fundarritari var Dagný Ingadóttir.
Þetta gerðist:
-
Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 3. desember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.
-
Rætt um skipulag bólusetninga í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Teymi hefur verið skipað sem sér um skipulagið fyrir hönd borgarinnar:
Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari
Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
Óli Jón Hertervig, skrifstofustjóri eignaskrifstofu
Lóa Birna Birgisdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og starfumhverfissviðs
Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, eða annar fulltrúi VEL
Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri almannavarna á höfuðborgarsvæðinu, er tengiliður hópsins. -
Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum:
a. Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum.
b. Regína Ásvaldsdóttir upplýsir um stöðu mála á velferðarsviði.
c. Ómar Einarsson upplýsir um stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði
d. Óskar Sandholt og Dagný Ingadóttir fara yfir stöðu mála varðandi stjórnsýsluhúsin, stefnt að því að opna í síðasta lagi 10. desember ef sóttvarnarreglur leyfa.
Fundi slitið 9:30
PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 4.12.2020 - prentvæn útgáfa