Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð - Fundur nr. 7

Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð

MENNINGAR-, ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ

Ár 2018, mánudaginn 12. nóvember var haldinn 7. fundur menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.31. Viðstaddir: Pawel Bartoszek, Hjálmar Sveinsson, Sabine Leskopf, Elín Oddný Sigurðardóttir, Katrín Atladóttir, Björn Gíslason og Baldur Borgþórsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ómar Einarsson, Arna Schram og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf íþrótta- og tómstundasviðs, dags. 6. nóvember sl., varðandi setu áheyrnarfulltrúa menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs á stjórnarfundum Íþróttabandalags Reykjavíkur.
    Samþykkt að Pawel Bartoszek verði áheyrnarfulltrúi og Steinþór Einarsson varaáheyrnarfulltrúi.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á árshlutauppgjöri menningar- og ferðamálasviðs fyrir janúar-september 2018. RMF18050002

    Huld Ingimarsdóttir, skrifstofustjóri fjármála og rekstrar á menningar- og ferðamálasviði, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 14:00 hefst opinn fundur menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
    -    Kl. 14:00 tekur Erling Jóhannesson sæti á fundinum.

  3. Fram fer kynning á aðstöðu til tónleikahalds í Reykjavík. RMF18010001

    Pawel Bartoszek, Hjálmar Sveinsson, Sabine Leskopf, Elín Oddný Sigurðardóttir, Katrín Atladóttir, Björn Gíslason og Baldur Borgþórsson taka sæti í pallborði. Pawel Bartoszek stýrir pallborðsumræðum.

    María Rut Reynisdóttir, verkefnastjóri Tónlistarborgarinnar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  4. Fram fer kynning á Framtíðarbókasafninu. RMF18040010

    Pawel Bartoszek, Hjálmar Sveinsson, Elín Oddný Sigurðardóttir, Katrín Atladóttir, Björn Gíslason og Baldur Borgþórsson taka sæti í pallborði. Pawel Bartoszek stýrir pallborðsumræðum.

    Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður og Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri þjónustu og þróunar á Borgarbókasafninu, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    kl. 15:20 víkur Sabine Leskopf af fundinum.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 15:42

Pawel Bartoszek Hjálmar Sveinsson