Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð - Fundur nr. 36

Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð

Ár 2021, fimmtudaginn 25. febrúar var haldinn 36. fundur, mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í fjarfundi í Ráðhúsi og hófst kl.13.02. Fundinn sátu Diljá Ámundadóttir, Daníel Örn Arnarsson og Ellen J. Calmon. Eftirtaldir fulltrúar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 230/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Kolbrún Baldursdóttir, Örn Þórðarson og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn Anna Kristinsdóttir og Óskar J. Sandholt.

Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á Launagreiningu Félagsvísindastofnunar á kynbundnum launamun. R21020159

    -    Kl. 13.05 tekur Ellen J. Calmon sæti á fundinum.

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Verulegur árangur hefur náðst í að minnka kynbundinn launamun hjá Reykjavíkurborg en þróunin er sú að leiðréttur kynbundinn launamunur varðandi heildarlaun hefur lækkað úr 21% árið 1995 í 1,8% í fyrra. Munur á grunnlaunum og heildarlaunum karla og kvenna er lítill en helst hallar á konur þegar kemur að breytilegri yfirvinnu. Þá eru heildarlaun kvenna með erlent ríkisfang 3% lægri en annarra kvenna. Um leið og við fögnum þessum góða árangri þarf stöðugt að vinna að því að útrýma því óréttlæti sem felst í launamun kynjanna. Launamun á grundvelli uppruna þarf sömuleiðis að útrýma og þar er lengra í land en ýmislegt í gangi á vegum borgarinnar til að ná settu marki.

    Fulltrúi Flokks Fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ef horft er til þessarar greiningar sem unnin er af Félagsvísindastofnun á launamun starfsmanna Reykjavíkurborgar þá þarf greinilega að horfa til margra hluta, grunnlauna, yfirvinnu og fleira. Niðurstaðan er 0.3% munur körlum í vil. Bilið hefur klárlega farið minnkandi og því ber að fagna. Heildarlaun fólks með erlent ríkisfang er 3% lægri. Þetta er eitthvað sem mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð gæti beitt sér fyrir að lagað verði. Nýlega kom í fréttum (21. janúar) og sem sjá má á vef Eurostat, að óleiðréttur launamunur kynjanna mældist 14% árið 2019 en var 13,6% árið 2018 og hafði þá lækkað um 1,4 prósentustig frá fyrra ári. Mikill munur er á launamun kynja eftir atvinnugreinum. Í þessari greiningu sem hér er kynnt hallar einnig mjög á konur þegar horft er til starfsgreina og fleiri þátta. 

    Harpa Hrund Berndsen og Guðmundur Bjarni Benediktsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á Stöðu aðgerða til að minnka launamun vegna uppruna. R21020160 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er gleðilegt að sjá aðgerðir samþykktar í ráðinu gegn launamun byggt á uppruna komnar til framkvæmda. Það er gríðarlega mikilvægt málefni að vinna að auknu aðgengi innflytjenda að Reykjavíkurborg sem starfsstað og fullu launajafnrétti óháð uppruna. Ýmislegt er í gangi tengt þessu, meðal annars vinna sem felst í betri miðlun upplýsinga á mismunandi tungumálum til starfsfólks, raunhæfara og sanngjarnara mati á reynslu innflytjenda og skýrum tungumálaviðmiðum byggt á alþjóðlegum staðli við atvinnuauglýsingar sem geta aukið aðgengi að störfum.
     
    Sigríður Þrúður Stefánsdóttir og Guðmundur Bjarni Benediktsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á Uppfærslu eyðublaða borgarinnar með tilliti til hlutlausrar kynskráningar sbr. 6. gr. laga um nr. 80/2019. R19040120

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það skiptir öllu máli að tryggja aðgengi allra kynja að þjónustu borgarinnar. Hluti af því er uppfærsla á eyðublöðum og verið er að vinna í því að uppfæra þau í takt við lög um kynrænt sjálfræði.

    Svandís Anna Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á Innleiðingu þjónustustefnu, stöðu mála. R18040190 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Innleiðing þjónustustefnu Reykjavíkur er á fleygiferð með átaki í nútímavæðingu þjónustu á þremur næstu árum í stað tíu í takt við Græna planið. Hér er verið að fjárfesta í stafrænni umbreytingu og nútímavæðingu þjónustu sem skilar mikilli hagræðingu til lengri tíma. Gott dæmi er fjárhagsaðstoðarferilinn sem fór frá því að taka marga daga eða jafnvel vikur yfir í að taka 1-2 sólarhringa á vefnum. Umsýslan er eftir breytingarnar mun hagkvæmari á færri höndum svo tími sérfræðinga nýtist betur.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins sér mikilvægi í því að uppfæra og endurnýja þjónustustefnu eftir því sem tækninni fleygir fram. Spurningin hér er hvort verið sé að gera það með skynsamlegum hætti. Ekkert er sparað við útlitsvinnu, en innihaldið er loðið. Eru þetta tækniverkefni eða kaup á nýjum kerfum eða bara einhver óskilgreind hugmyndavinna? Það er ekki skýrt hvað það sem hér er kynnt skilar sér nákvæmlega í formi hagræðingar? Gróðurhúsið: Hvað er þarna á ferðinni og hvað mun koma út úr allri þessari teymisvinnu sérstaklega? Teymisvinna er dýr. Eftir hundruð milljóna ráðgjafakaup frá einkaaðilum spyr maður um lausnirnar og virkni þeirra. Þarf að útvista verkefnum og kaupa milljarða ráðgjöf til að borgin geti státað að góðri þjónustustefnu/skráningarferli? Hver á svo að mæla árangurinn? Þjónustu- nýsköpunarsvið gerir það sjálft og veldur það áhyggjum. Upplifun fulltrúa Flokks fólksins er að hér séu einhvern veginn engin takmörk þegar kemur að fjáraustri. Það verður að fá óháðan aðila, sérfræðing í fjármálum og sem hefur eitthvað vit á upplýsingatæknimálum til að skoða og meta hvort öll þessi hugmyndakaup af ráðgjafafyrirtækjum og útvistun verkefna sé eina leiðin að markmiðinu.

    Silja Lind Haraldsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á Mælaborði þjónustuvers. R21020060 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikill kostnaður er lagður í þróun þjónustu eins og ekki hafi neitt verið unnið að þróun þjónustu áður? Er verið að finna öll þessi hjól upp í fyrsta sinn? En það getur ekki verið. Gera má því skóna af kynningunni að dæma að ekki sé hægt að nýta neitt fyrri vinnu og að hugmyndavinna haldi áfram án fyrirsjáanlegs enda. Kostnaðurinn er óhemju mikill í þessu verkefni og fer til ýmissa einkaaðila sem hafa þróun borgarmála í upplýsingatækni í höndum sér. Fulltrúi Flokks fólksins fær það á tilfinninguna að hér sé í gangi „tilraunastarfsemi“ sem kostar milljarða. Fyrir þær tugi milljóna sem búið er að setja í ráðgjöf, hefði kannski verið hægt að byggja upp innviði upplýsingaþjónustunnar nú eða ráða sálfræðinga í skóla borgarinnar til að taka á 800 barna biðlista sem bíða eftir sálfræðiaðstoð? Hver getur metið árangurinn af öllu þessu sem hér er verið að kynna? Þjónustu- og nýsköpunarsvið gerir það sjálft núna en trúverðugast væri að fá mat eftirlitsaðila eins og innri endurskoðunar til að fara ofan í saumana á hvort hér sé verið að fara vel og skynsamlega með fjármuni borgarinnar. Rýna þarf í kostnað og bera hann saman við afurðina. Hvað segja borgarbúar með þjónustuna? 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Áður hefur verið fjárfest í þjónustuumbótum en núverandi meirihluti er gríðarlega metnaðarfullur hvað þetta varðar og því er svo margt í gangi tengt nútímavæðingu þjónustu og nýsköpun.

    -    Kl. 15.14 víkur Daníel Örn Arnarsson af fundi. 

    Arna Ýr Sævarsdóttir og Óli Páll Geirsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á Upplýsingum á erlendum tungumálum á vefefni Reykjavíkurborgar. R19010057 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Upplýsingagjöf um þjónustu Reykjavíkurborgar fer að mestu leyti fram í gegnum netið á vefsíðu borgarinnar. Þar er hægt að finna upplýsingar um hvar og hvernig þjónustan er veitt og hvernig er hægt að nálgast þjónustuna, fréttir um viðburði og atburði og upplýsingar um það sem er að gerast í borginni. Vefsíðan er að jafnaði ein af fimm mest sóttu vefsíðum Íslands. Ákveðið var á sameiginlegum fundi mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs og fjölmenningarráðs vorið 2020 að fjárfesta í umbótum í upplýsingagjöf og aðgengi að upplýsingum á öðrum tungumálum en íslensku á vef borgarinnar. Nú hefur verið ráðinn til starfa sérfræðingur í vélþýðingum sem vinnur að þessu fullum fetum til að gera þjónustu borgarinnar aðgengilegri fólki með önnur móðurmál en íslensku.

    Ólafur Sólimann Helgason og Einar Haukur Jóhannesson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  7. Fram fer kynning á verkefninu Start up in Residence, Evrópuumsókn þjónustu- og nýsköpunarsviðs. R21020161 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Startup in Residence er nýskapandi aðferð í innkaupum og snýst um að fá íbúa og frumkvöðla að því að leysa áskoranir á vettvangi borgarinnar byggt á fyrirmynd Amsterdamborgar. Þetta er spennandi nýsköpunarverkefni sem er til þess fallið að styðja við nýsköpunarumhverfið á Íslandi um leið og við byggjum brú milli stjórnsýslunnar og hugmyndaauðgi einstaklinga sem getur leitt til fjölbreyttari lausna, aukins virðis og bættrar þjónustu fyrir Reykvíkinga. Markmiðið er að gera borgina aðgengilegri, kvikari og sveigjanlegri.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hugmynd um 15 milljóna styrk er reifuð en ekki er að sjá hvað verkefnið muni kosta. Af kynningunni að dæma er þetta allt frekar ómarkvisst, blanda af óljósum hugmyndum og óljósum hugtökum. Hvað er áskorun og hvað er verkefni? Nýskapandi aðferðir í innkaupum? Markaðsbrestur í virðiskeðju sprotafyrirtækja? Þetta er með öllu óskiljanlegt venjulegu fólki. Þetta er sett í háfleygan búning þannig að erfitt er að skilja þetta og erfitt að meta hver sé eðlilegur kostnaður við þetta. Fulltrúi Flokks fólksins vill staldra við hér og láta meta mikilvægi alls þessa og hvort eðlilegt sé að eyða í þetta milljörðum úr borgarsjóði. Verið er að sýsla með útsvarsfé borgarbúa. Ávinningur og notkunargildi er með öllu óljóst og stór spurning hvort það sé í samræmi við kostnaðinn. Það er engu líkara en að þjónustu- og nýsköpunarsvið sé að verða ríki í ríkinu sem er farið að reka sína eigin alþjóðaskrifstofu ásamt því að vera með dýran áskriftarsamning við erlent ráðgjafarfyrirtæki. Það er staðreynd að gríðarlegum fjármunum hefur verið varið í mörg ár í allskonar hjá þjónustu- og tæknisviðinu sem er alveg óvíst hvar endar og hvort það sé að skila sér í einhverju samræmi við mikinn kostnað.

    -    Kl. 16.18 víkur Diljá Ámundadóttir af fundinum.

    Kristinn Jón Ólafsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins: 

    Fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um innleiðingu þjónustustefnu. Fulltrúi Flokks fólksins vill spyrja út í liðinn Staða verkefna; Verið er að vísa í einhver verkefni sem erfitt er að átta sig á. Eru þetta tækniverkefni eða kaup á nýjum kerfum eða bara einhver óskilgreind hugmyndavinna? Hvað kostar þessi vinna og hverju skilar hún í formi hagræðingar? Eru þessar kostnaðarsömu leiðir einu leiðirnar sem hægt er að fara til að bjóða borgarbúum upp á góða upplýsingatækniþjónustu? Fulltrúi Flokks fólksins spyr út í Gróðurhúsið; Hvað kostar þessi hugmyndavinna sérstaklega? Hvað er reiknað með að komi út úr hópvinnunni sérstaklega og var fjöldi tíma í teymisvinnu nauðsynlegur til að ná markmiðinu? Spurningar vegna Stafrænnar umbreytingar; Hvaða lausnir eru farnar að virka í reynd af stafrænni umbreytingu sem búið er nú þegar að verja hundruð milljóna í? Spurningar vegna Hugmyndavinnu og þjónustuhönnun: Hvar er hægt að sjá lausnirnar, endapunkt hugmyndavinnunnar? Hvernig er hægt að mæla þessi huglægu fyrirbæri þannig að borgarbúar geti séð og þreifað á því sem kosta þá milljónir, jafnvel milljarða? R21020221

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs. 

  9. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins: 

    Fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um mælaborð þjónustuvers. Hvort ekki sé hægt að sameina eitthvað af þessum skrifstofum undir þessu sviði t.d. skrifstofa þjónustuhönnunar og skrifstofa gagnaþjónustunnar og Stafræn Reykjavík, á þetta ekki allt heima undir Upplýsingatækniskrifstofu? Ekki er beint séð að það þurfi skrifstofu undir þjónustuhönnun? Með sameiningu væri mikill sparnaður og hagræðing. Spurt er einnig hvort engin hugmyndavinna hafi verið í gangi síðustu árin? En hafi verið hugmyndavinna, skilaði hún þá litlu eða engu? Loks er spurt hvort verið sé að setja svona mikið fjármagn í svipaða þætti hjá öðrum fyrirtækjum t.d. hjá einkafyrirtækjum? R21020222

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs. 

Fundi slitið klukkan 16:18

Dóra Björt Guðjónsdóttir Skúli Helgason

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
mnl_2502.pdf