Íþrótta- og tómstundaráð – starfaði til 2022
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ
Ár 2018, föstudaginn 9. mars, var haldinn 278. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í veitingaskála í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og hófst kl. 11:35. Fundurinn var opinn almenningi og mættu um 30 gestir. Viðstödd: Þórgnýr Thoroddsen formaður, Eva Einarsdóttir, Tomazs Chrapek, Örn Þórðarson varamaður fyrir Mörtu Guðjónsdóttur og Björn Gíslason varamaður fyrir Kjartan Magnússon. Jafnframt sátu fundinn: Trausti Harðarson áheyrnarfulltrúi, Frímann Ari Ferdinandsson áheyrnarfulltrúi ÍBR, Andrés B. Andreasen fjármálastjóri ÍTR, Ómar Einarsson sviðsstjóri og Helga Björnsdóttir skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Fram fer kynning á gildi og mikilvægi þátttöku í tómstundastarfi.
- Kl. 12:05 tekur Dóra Magnúsdóttir sæti á fundinum.
Vanda Sigurgeirsdóttir lektor við HÍ tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
2. Fram fer kynning á heilsueflandi samfélagi og heilsueflingu eldra fólks.
Sigríður Guðný Gísladóttir og Drífa Baldursdóttir frá þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða taka sæti á fundinum undir þessum lið.
3. Fram fer kynning á Stelpur rokka.
- kl. 12:40 víkur Ómar Einarsson af fundi.
- kl. 12:55 víkja Tomazs Chrapek, Dóra Magnúsdóttir og Frímann Ari Ferdinandsson af fundi.
Eyrún Ólöf Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
4. Fram fer kynning um mikilvægi útiveru, frítíma og tómstundastarfi.
- Kl. 13:20 víkur Eva Einarsdóttir af fundi.
Fundi slitið kl. 13:40
Þórgnýr Thoroddsen
Örn Þórðarson Björn Gíslason