Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 72

Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 72

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2022, fimmtudaginn 12. maí 2022 var haldinn 72. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal, 4. hæð Borgartúni 12-14 og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Sara Björg Sigurðardóttir, Björn Gíslason, Valgerður Árnadóttir, Sabine Leskopf. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Theodór Kjartansson frá borgarlögmanni. Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu sat fundinn í fundarsal. Guðbjörg Matthíasdóttir frá innkaupaskrifstofu sat einnig fundinn í fundarsal og var jafnframt fundarritari.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf íþrótta- og tómstundasviðs dags. 6. maí 2022, merkt FAS22030008, útboð nr. 15442 „Kaup á drykkjarvörum til endursölu á starfsstöðvum ÍTR“.  Lagt er til við innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda sem er Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi ehf. að fjárhæð kr. 30.466.500.-

    Samþykkt

    Andrés Andreason tók sæti undir þessum fundarlið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu umhverfisgæða, umhverfis- og skipulagssviði dags. 9. maí 2022, EES útboð nr. 15463  „Kaup á sorphirðubifreiðum fyrir Reykjavíkurborg“. Lagt er til við innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að tilboð lægstbjóðanda sem jafnframt er eini bjóðandinn, sem er Klettur- sala og þjónusta ehf., að fjárhæð kr. 327.864.135,-

    Samþykkt

    Friðrik Gunnarsson tók sæti undir þessum fundarlið.

    Fylgigögn

Sabine Leskopf Sara Björg Sigurðardóttir

PDF útgáfa fundargerðar
72._fundargerd_innkaupa-_og_framkvaemdarads_fra_12._mai_2022.pdf