Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2022, fimmtudaginn 13. janúar var haldinn 59. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal, 4. hæð Borgartúni 12-14 og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Sabine Leskopf, Dóra Magnúsdóttir, Björn Gíslason, R. Alda Vilhjálmsdóttir og Valgerður Árnadóttir. Einnig sat fundinn Jón Pétur Skúlason frá embætti borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir skrifstofustjóri innkaupaskrifstofu.
Fundarritari var Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir
Þetta gerðist:
-
Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. janúar 2022, um að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, Gímó ehf. að upphæð kr. 435.516.729,- í útboði nr. 15350 Safamýri 5 – Nýr leikskóli. Endurbætur, fullnaðarfrágangur og lóðarframkvæmd.
Samþykkt
Ámundi Brynjólfsson tekur sæti undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.
Fylgigögn
Fundi slitið klukkan 13:13
Sabine Leskopf Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
59._fundargerd_innkaupa-_og_framkvaemdarads_fra_13._januar_2022.pdf