Íbúaráð Grafarvogs - Fundur nr. 2

Íbúaráð Grafarvogs

Ár 2019, miðvikudaginn 4. desember, var haldinn 2. fundur Íbúaráð Grafarvogs. Fundurinn var haldinn í Rimaskóla og hófst klukkan 17:06. Viðstödd voru Ásmundur Jóhannsson, Berglind Eyjólfsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Árni Guðmundsson, Sævar Reykjalín. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson og Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð

Þetta gerðist:

  1. Fram fer umræða um tilnefningar í bakhóps íbúaráðs Grafarvogs.
    Frestað

  2. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 25. ágúst 2019, þar sem breytingar á úthlutunarreglum hverfissjóðs er vísað til umsagnar hverfisráða, sbr. 5. lið fundargerðar mannréttinda-, nýsköpunar og lýðræðisráðs frá 12. september.

    Íbúaráð Grafarvogs gerir ekki athugasemdir við drög að breytingum á úthlutunarreglum.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, sbr. 12. lið fundargerðar íbúaráðs Grafarvogs 20. nóvember 2019. 
    Samþykkt. 

    Fylgigögn

  4. Lögð fram auglýsing vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 42 við Fundafold.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning frá stýrihópi um innleiðingu íbúaráða. 

    Örn Þórðarson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  6. Fram fer umræða um fundartíma ráðsins í janúar. 
    Samþykkt að næsti fundur ráðsins fari fram 15. janúar.

  7. Fram fer umræða um málefni hverfisins.

  8. Lagðar fram til afgreiðslu styrkumsóknir í hverfissjóð.
    Samþykkt að veita Korpúlfum styrk að upphæð kr. 300.000,- vegna hreinsunar gönguleiða og opinna svæða.
    Samþykkt að veita Ungmennafélaginu Fjölni styrk að upphæð kr. 50.000,- vegna verkefnisins Eldri borgarar Grafarvogs – Korpúlfar.
    Samþykkt að veita barna- og unglingaráði handknattleiksdeildar Fjölnis styrk að upphæð kr. 130.000,- vegna prentunar á auglýsingum, endurnýjun á mjúkboltum og lokahófs, vegna barna- og unglingamóts í softball.
    Samþykkt að veita Ungmennafélaginu Fjölni styrk að upphæð kr. 400.000,- vegna Þorrablóts Grafarvogs.
    Samþykkt  að veita Korpúlfum styrk að upphæð kr. 100.000,- vegna verkefnis um eflingu og stuðning við skákiðkun.
    Samþykkt að veita verkefninu Friður og Nágrannaboð í Borgum styrk að upphæð kr. 100.000,-

    Öðrum umsóknum hafnað. 

    Valgerður Sigurðardóttir víkur af fundi undir þessum lið.
    Samþykkt var að loka fundi ráðsins undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 18:52

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_grafarvogs_0412.pdf