Stjórnkerfis- og lýðræðisráð
Ár 2015, 1. júní, var haldinn 19. fundur stjórnkerfis- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhúsi og hófst kl. 13.40. Fundinn sátu Halldór Auðar Svansson, Diljá Ámundadóttir, Hilmar Sigurðsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Björn Gíslason, Marta Guðjónsdóttir, Stefán Þór Björnsson og áheyrnarfulltrúinn Eyrún Eyþórsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ellý Katrín Guðmundsdóttir, Sonja Wiium og Óskar J. Sandholt.
Fundaritari::
Ásta Guðrún Beck
-
Lögð er fram að nýju eftirfarandi fyrirspurn fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina dags. 4. maí 2015 (R15050021):
Fylgigögn
- Fyrirspurn Framsóknar og flugvallarvina um viðbrögð stjórnkerfis- og lýðræðisráðs við könnun MMR í apríl 2015 um hug Íslendinga
- Svar frá fulltrúum Pírata, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Samfylkingar
Bókanir við dagskrárlið:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og flugvallarvina leggja fram eftirfarandi bókun:
-
Fram fer kynning á stöðu tillagna í skýrslu um nýtingu upplýsingatækni 2012-2016. Óskar Jörgen Sandholt, skrifstofustjóri skrifstofu þjónustu og reksturs, kynnir. Jón Ingi Þorvaldsson, deildarstjóri upplýsingatæknideildar, tekur sæti undir þessum lið. (R12090050)
Fylgigögn
-
Kynning á greinargerð um áhrif notkunar samfélagsmiðla á net- og upplýsingaöryggi.
Kynningu er frestað til næsta fundar. -
Lagt er fram til kynningar bréf frá mannréttindaskrifstofu um opinn fund mannréttindaráðs með grasrótarsamtökum. (R15050097)
Fylgigögn
-
Lögð eru fram lokadrög stýrihóps að nýrri upplýsingastefnu Reykjavíkurborgar ásamt greinargerð um samráðsferli. Samþykkt að vísa upplýsingastefnunni til samþykktar í borgarráði eftir að prófarkalestri er lokið. (R15020022)
Fylgigögn
-
. Fram fer umræða um afmælisviðburði vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna. Lagt er til að notað verði kerfi Betri Reykjavíkur til þess að safna efni fyrir afrekasýningu sem halda á í Tjarnarsal. Auk þess verði opinn fundur stjórnkerfis- og lýðræðisráðs haldinn á Hallveigarstöðum og þemað verði í tengslum við 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Samþykkt. (R14060161)
-
Hilmar Sigurðsson leggur fram eftirfarandi tillögu ásamt greinargerð:
Í ljósi framkomins frumvarps til laga á Alþingi um skipulags- og mannvirkjamál á Reykjavíkurflugvelli, þingskjals 478, 361. mál, samþykkir Stjórnkerfis- og lýðræðisráð hefja undirbúning að ráðgefandi íbúakosningu í Reykjavíkurborg þar sem spurt verður: „Viltu að Reykjavík verði sjálfstætt borgríki?“ með svarmöguleikunum já eða nei. Við undirbúning kosningarinnar verði í fyrstu umferð leitað eftir umsögn borgarlögmanns um tillöguna. Íbúakosningin verði haldin í gegnum rafrænt kosningakerfi sem Þjóðskrá hefur til ráðstöfunar. Allir íbúar á kosningaaldri í Reykjavíkurborg eigi rétt til þátttöku í kosningunni.Frestað.
Fundi slitið kl. 15:30
Halldór Auðar Svansson
Hilmar Sigurðsson
Stefán Þór Björnsson
Björn Gíslason
Heiða Björg Hilmisdóttir