Fjölmenningarráð - Fundur nr. 14

Fjölmenningarráð

Ár 2018, miðvikudaginn 5. september, var haldinn 14. fundur fjölmenningaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl.15.03. Fundinn sátu Sabine Leskopf, Örn Þórðarson, Herianty Novita Seiler, Tamila Gámez Garcell. Einnig sátu fundinn Anna Kristinsdóttir og Joanna Marcinkowska sem var fundarritari. 

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf frá skrifstofu borgarstjórar dags. 19.júní 2018 um kosningu fulltrúa í fjölmenningarráð R18060104.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á nýjum fulltrúum fjölmenningarráðs.

  3. Fram fer kynning á nýjum fulltrúum fjölmenningarráðs.

    Frestað.

  4. Lögð fram drög að umsögn um breytingu á samþykktum fjölmenningarráðs.
    Samþykkt.
    Vísað til forsætisnefndar.

     

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um Fjölmenningardag Reykjavíkurborgar.
    Mannréttindaskrifstofu falið að hefja undirbúning af viðburði sem endurspeglar margbreytileika samfélagsins í Reykjavík í anda viðburða í Kristiansand í Noregi. Ákvörðunin verður kynnt mannréttinda- og lýðræðisráði. R18030105.

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum innflytjenda, flóttafólks og umsækjenda um alþjóðalega vernd 2018-2022.

    Fylgigögn

  7. Fram fer umræða um Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar sem haldið verður þann 17.nóvember 2018 R17020029.

    Fjölmenningarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fjölmenningarráðið fagnar að Fjölmenningarþingið mun leggja áherslu á kynbundið ofbeldi, börn af erlendum uppruna og stöðu starfsfólks Reykjavíkurborgar sem eru af erlendum uppruna. Ráðið mun taka virkan þátt í undirbúning þingsins og hvetur borgarfulltrúa og fulltrúa sviðanna til þátttöku í þessu uppbyggilega samtali.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 16:20

Sabine Leskopf