No translated content text
Endurskoðunarnefnd
Ár 2024, mánudaginn 2. september var haldinn 306. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 13:07. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, starfandi innri endurskoðandi.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Lögð fram trúnaðarmerkt drög að árshlutareikningi Reykjavíkurborgar vegna 1. janúar til 30. júní 2024, trúnaðarmerkt drög að greinargerð B hluta fyrirtækja, trúnaðarmerkt drög að greinargerð fagsviða og trúnaðarmerkt drög að skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs með árshlutareikningnum. IER24020020
Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir og Jónas Skúlason taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að ganga frá umsögn til borgarráðs um árshlutareikning Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2024.
-
Lagt fram trúnaðarmerkt svar fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar dags. 29.08.2024 við fyrirspurn endurskoðunarnefndar dags. 12.06.2024 um erlenda lántöku borgarinnar. IER24060009
Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lagt fram svar mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar dags. 27.08.2024 við fyrirspurn endurskoðunarnefndar dags. 19.08.2024 um veikindahlutfall starfsfólks Reykjavíkurborgar 2021-2024. IER24080015
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd felur Innri endurskoðun og ráðgjöf að afla frekari upplýsinga hjá mannauðs- og starfsumhverfissviði borgarinnar. -
Fram fer umræða um endurskoðun á samþykkt endurskoðunarnefndar og starfsreglum. IER23060006
-
Fram fer umræða um starfsskýrslu endurskoðunarnefndar. IER24080012
-
Fram fer umræða um starfsáætlun endurskoðunarnefndar fyrir starfsárið 2024-2025. IER24080013
Fundi slitið kl. 14:56
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 2. september 2024