No translated content text
Endurskoðunarnefnd
ENDURSKOÐUNARNEFND
Ár 2021, mánudaginn 6. desember var haldinn 233. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 13:24. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Sunna Jóhannsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Einar S. Hálfdánarson boðaði forföll.
Fundarritari var Hallur Símonarson.
Þetta gerðist:
1. Fram fer kynning á verkefnum fagsviðs innri endurskoðunar hjá B hluta fyrirtækjum IE21020001
Ingunn Ólafsdóttir, fagstjóri innri endurskoðunar tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
2. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga Einars S. Hálfdánarsonar dags. 4. október 2021 um gerð samstæðureiknings Reykjavíkurborgar fyrir árið 2021 ásamt umsögn sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs dags. 3. þ.m.
Endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar leggur til að matsbreyting fjárfestingaeigna verði ekki færð í rekstrarreikning borgarinnar, heldur beint á eigið fé. IE20100011
Frestað
Gísli Hlíðberg Guðmundsson, borgarbókari, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
3. Fram fer umræða endurskoðun á samþykkt endurskoðunarnefndar. IE21100012
Sigrún Jóhannesdóttir lögfræðingur Innri endurskoðunar og ráðgjafar tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
4. Önnur mál
Lýst kjöri borgarstjórnar í endurskoðunarnefnd hinn 16. nóvember sl. þar sem samþykkt var að Páll Grétar Steingrímsson tæki sæti sem varamaður í stað Diljár Mistar Einarsdóttur.
Fundi slitið kl. 16:12
Lárus Finnbogason
Sunna Jóhannsdóttir Sigrún Guðmundsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 06.12.2021 - prentvæn útgáfa