Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 135

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2017, mánudaginn 20. nóvember var haldinn 135. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Tjarnargötu 12 og hófst kl. 9:07. Viðstödd voru Ólafur Kristinsson, Inga Björg Hjaltadóttir, Sunna Jóhannsdóttir og Ingvar Garðarsson. Fundarritari var Kristín Vilhjálmsdóttir. Jafnframt sat fundinn Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.         Lögð fram drög að umsögn endurskoðunarnefndar um árshlutareikning Félagsbústaða janúar-september 2017. IE17060001

       Samþykkt.

2.         Lögð fram drög að umsögn endurskoðunarnefndar um árshlutareikning Orkuveitu Reykjavíkur sef. janúar-september 2017. IE17060001

Samþykkt.

- Kl. 09:30 tekur Hallur Símonarson sæti á fundinum.

3. Lögð fram innri endurskoðunaráætlun Sorpu bs. IE17110002

Samþykkt.

Endurskoðunarnefnd leggur fram svohljóðandi bókun:

Endurskoðunarnefnd samþykkir innri endurskoðunaráætlun Sorpu bs. og vísar henni til stjórnar með vísan til verklagsreglu sem samþykkt var á fundi endurskoðunarnefndar 3. apríl 2017. Í samræmi við verklagsregluna gerir endurskoðunarnefnd ráð fyrir því að fulltrúi hennar verði viðstaddur kynningu innri endurskoðanda á fundi stjórnar.

Jón Sigurðsson og Auðbjörg Friðgeirsdóttir frá PwC og Halldór Auðar Svansson, stjórnarformaður Sorpu bs. taka sæti á fundinum undir þessum lið.

4 Lögð fram innri endurskoðunaráætlun Strætó bs. IE17110002

Samþykkt.

Endurskoðunarnefnd leggur fram svohljóðandi bókun:

Endurskoðunarnefnd samþykkir innri endurskoðunaráætlun Strætó bs. og vísar henni til stjórnar með vísan til verklagsreglu sem samþykkt var á fundi endurskoðunarnefndar 3. apríl 2017. Í samræmi við verklagsregluna gerir endurskoðunarnefnd ráð fyrir því að fulltrúi hennar verði viðstaddur kynningu innri endurskoðanda á fundi stjórnar.

Sif Einarsdóttir frá Deloitte tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

5. Fram fer kynning á niðurstöðum úr innri endurskoðun á auðlindastýringu, frumskoðun og vöktun. IE17110007

Guðmundur I. Bergþórsson, innri endurskoðandi OR, og Danielle Pamela Neben taka sæti á fundinum undir þessum lið.

6. Fram fer kynning á úrlausnum innan Orkuveitu Reykjavíkur við ábendingum innri endurskoðunar OR. IE17110008

Guðmundur I. Bergþórsson, innri endurskoðandi OR, og Danielle Pamela Neben taka sæti á fundinum undir þessum lið.

7. Fram fer kynning á innra eftirlitsumhverfi Orkuveitu Reykjavíkur. IE17110009

Guðmundur I. Bergþórsson, innri endurskoðandi OR, og Danielle Pamela Neben taka sæti á fundinum undir þessum lið.

Fundi slitið kl. 13:00

Ólafur Kristinsson

Inga Björg Hjaltadóttir                                                                     Sunna Jóhannsdóttir

Ingvar Garðarsson

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 20.11.2017 - prentvæn útgáfa