Borgarráð - Fundur nr. 4638

Borgarráð

Ár 2000, þriðjudaginn 11. júlí, var haldinn 4638. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.00. Viðstaddir voru Sigrún Magnúsdóttir, Helgi Hjörvar, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Hrannar Björn Arnarsson, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Ólafur F. Magnússon og Inga Jóna Þórðardóttir. Fundarritari var Kristbjörg Stephensen.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram fundargerð Bláfjallanefndar frá 28. júní.

2. Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 7. júlí.

3. Lögð fram fundargerð leikskólaráðs frá 28. júní.

4. Lögð fram fundargerð samstarfsráðs Kjalarness frá 6. júlí.

5. Lögð fram fundargerð stjórnar Innkaupastofnunar frá 10. júlí.

6. Lögð fram fundargerð stjórnar Sorpu frá 29. júní.

7. Lögð fram fundargerð stjórnar veitustofnana frá 5. júlí.

8. Lagt fram bréf fulltrúa borgarstjórnar, dags. í dag, um embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 9 mál.

9. Lagt fram endurrit úr dómabók Héraðsdóms Reykjavíkur, mál nr. E-3715/2000, Brynjólfur Jósteinsson og Gyða Brynjólfsdóttir gegn Reykjavíkurborg.

10. Lagt fram bréf borgarlögmanns frá 7. þ.m., þar sem lagt er til að borgarráð samþykki kaup á fjórum landspildum úr landi Reynisvatns, alls að stærð 7,1 ha. Samþykkt.

11. Lagt fram að nýju bréf framkvæmdastjóra Hjúkrunarheimilis aldraðra í Víðinesi frá 12. apríl s.l. varðandi fjárframlag. Jafnframt lögð fram umsögn borgarlögmanns frá 3. þ.m. um erindið. Borgarráð samþykkir umsögnina.

12. Lagt fram að nýju bréf heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins frá 21. júní s.l. um sameiningu heilsugæslustöðva. Jafnframt lögð fram umsögn borgarlögmanns um erindið. Borgarráð samþykkir umsögnina.

Ólafur F. Magnússon lagði fram svohljóðandi bókun:

Ég fagna sameiningu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og tel að hún stuðli að betri og markvissari vinnubrögðum og leysi ýmsan stjórnunarvanda sem upp hefur komið í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu. Ég vona að þessi sameining geti orðið sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu hvatning til frekari aðgerða í átt til sameiningar á fleiri sviðum.

13. Lagðar fram umsagnir fulltrúa borgarstjórnar frá 10. og 11. þ.m. um leyfi til áfengisveitinga fyrir eftirtalda staði:

Bláa engilinn, Austurstræti 6 Billiardstofu Reykjavíkur, Hverfisgötu 46

Borgarráð samþykkir umsagnirnar.

14. Lagt fram bréf skrifstofustjóra Innkaupastofnunar frá 10. þ.m. um tilboð í lagfæringar á Eiðsgranda. Samþykkt að taka tilboði lægstbjóðanda, Víkurverks hf.

15. Lagt fram bréf skrifstofustjóra Innkaupastofnunar frá 10. þ.m. varðandi tilboð í lengingu Kleppsbakka, 4. áfanga. Samþykkt að taka tilboði lægstbjóðanda,Valar ehf.

16. Lagt fram erindi oneoone gallerís, dags. 26. mars s.l., um umhverfislistaverk eftir Ólaf Elíasson í miðborg Reykjavíkur. Jafnframt lögð fram umsögn framkvæmdastjóra miðborgar og gatnamálastjóra, dags. í dag, um erindið. Ennfremur lagt fram bréf oneoone gallerís, dags. 7. þ.m. ásamt fylgiskjölum þar sem farið er fram á fjárstuðning við gerð umhverfislistaverksins að fjárhæð kr. 3,5 mkr. með þeim hætti að borgin kaupi sportgras til nota í listaverkið.

Borgarráð samþykkir eftirfarandi með 4 atkvæðum:

Borgarráð tók fyrir sitt leyti jákvætt í að umhverfislistaverki yrði komið fyrir í miðborg Reykjavíkur í sumar á grundvelli hugmynda oneoone gallerís enda yrði um það víðtæk sátt við hagsmunaaðila á svæðinu. Hvorki við kynningu málsins né við undirbúning þess kom fram ósk um að Reykjavíkurborg styrkti verkefnið með beinum fjárframlögum. Borgarráð veitir heimild til að umhverfislistaverkinu verði komið fyrir í samræmi við umsögn gatnamálastjóra og framkvæmdastjóra miðborgar, en fellst ekki á ósk um fjárstuðning.

17. Lagt fram til kynningar bréf skrifstofustjóra borgarverkfræðings frá 10. þ.m. varðandi samþykkt stjórnar veitustofnana frá 5. s.m. um samning milli Orkuveitu Reykjavíkur og Metans hf. um framleiðslu raforku úr hauggasi.

18. Lagt fram til kynningar bréf skrifstofustjóra borgarverkfræðings frá 10. þ.m. varðandi samþykkt stjórnar veitustofnana frá 5. s.m. um að láta fara fram forval á aðilum til að gera hagkvæmniathugun á járnbraut milli Reykjavíkur og Keflavíkur.

19. Lagt fram bréf Cirkus Agora frá 10. þ.m., þar sem óskað er leyfis fyrir sirkus í Laugardalnum vikuna 21.-28. júlí n.k. Borgarráð leggst ekki gegn rekstri sirkuss í Laugardalnum vikuna 21.-28. júlí n.k., enda liggi fyrir leyfi lögreglu og Heilbrigðiseftirlits auk þess sem önnur skilyrði lögreglu og Heilbrigðiseftirlits fyrir slíkum rekstri verði uppfyllt. Þá verði umgengni og frágangur svæðisins í fullu samráði við embætti garðyrkjustjóra.

20. Lagður fram að nýju 31. liður fundargerðar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 6. júní s.l.; frestað á síðasta fundi borgarráðs. Samþykktur með 5 atkv. gegn 2. Helgi Hjörvar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir greiddu atkvæði gegn erindinu og lögðu fram svohljóðandi bókun:

Í allnokkurn tíma hafa eigendur húss að Heiðargerði 76 sótt um til borgaryfirvalda að hækka og stækka hús sitt. Umsóknum um ofanábyggingu hefur ítrekað verið hafnað með rökstuðningi frá Borgarskipulagi og byggingarnefnd og byggja þær synjanir í aðalatriðum á því að lóðarnýting er nú þegar langt umfram það sem almennt gerist í nágrenninu. Íbúar í næsta nágrenni hafa jafnframt mótmælt fyrirhuguðum byggingaframkvæmdum m.a. á grundvelli skuggavarps á þeirra eignir. Í Aðalskipulagi Reykjavíkur er miðað við nýtingu í sambýlishúsum á svæðinu með 2-5 íbúðir á bilinu 0,5-0,8. Sú breyting sem hér er sótt um setur nýtingu Heiðargerðis 76, sem í eru tvær íbúðir, í 0,77. Samkvæmt því er nýtingin umtalsvert hærri en gengur og gerist í næsta nágrenni, þar sem meðalnýtingarhlutfall er um 0,4. Við bendum einnig á að breytingin er ekki í samræmi við byggðamynstrið.

21. Lagt fram bréf skipulagsstjóra frá 27. f.m., sbr. samþykkt skipulags- og umferðarnefndar 26. s.m. um Öskjuhlíð/Nauthólsvík, breytingu á deiliskipulagi vegna breyttrar legu göngustígs ásamt umsögn umhverfis- og heilbrigðisnefndar í bréfi dags. 7. júlí s.l., sbr. samþykkt nefndarinnar 26. júní s.l. Samþykkt.

22. Lagt fram bréf skipulagsstjóra, dags. í dag, sbr. samþykkt skipulags- og umferðarnefndar frá 26. f.m. varðandi Engjateig 7, breytingu á deiliskipulagi. Samþykkt.

23. Lagt fram bréf embættis borgarverkfræðings frá 9. þ.m. varðandi frummat á umhverfisáhrifum Reykjanesbrautar við Mjódd. Borgarráð fellst á frummatið, en leggur jafnframt áherslu á að undirgöngin við Stekkjarbakka verði gerð jafnhliða gatnamótunum við Breiðholtsbraut/ Nýbýlaveg.

24. Lagt fram bréf skrifstofustjóra borgarverkfræðings frá 10. þ.m. um að Íslenskum aðalverktökum hf. verði úthlutað byggingarrétti fyrir hjúkrunarheimili á lóðinni nr. 2 við Sóltún. Samþykkt.

25. Lagt fram bréf skrifstofustjóra borgarverkfræðings frá 10. þ.m. um að borgarráð samþykki kaup á sumarbústað að III.-götu 14 við Rauðavatn með niðurrif eða brottflutning sumarbústaðarins fyrir augum. Samþykkt.

26. Lagt fram bréf Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins frá 23. f.m., þar sem leitað er álits á því hvort borgarráð geri athugasemd við staðsetningu vínbúðar á Spönginni. Jafnframt lagðar fram umsagnir Borgarskipulags frá 30. f.m. og embættis byggingarfulltrúa frá 10. þ.m. Borgarráð gerir ekki athugasemdir við erindið.

27. Lagt fram bréf fulltrúa borgarstjórnar, dags. í dag, varðandi samþykkt verkefnisstjórnar um veitingamál s.d. um framlengingu reynsluákvæðis um ótakmarkaðan veitingatíma vínveitingahúsa. Samþykkt.

38. Kynntar hugmyndir að skipulagi Skúlagötureits (Eimskipafélagsreits).

- Kl. 14.50 vék Helgi Hjörvar af fundi.

29. Afgreidd 20 útsvarsmál.

Fundi slitið kl. 15.05.

Sigrún Magnúsdóttir

Inga Jóna Þórðardóttir Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Jóna Gróa Sigurðardóttir Hrannar Björn Arnarsson
Ólafur F. Magnússon