Borgarráð - Borgarráð þriðjudaginn 17. febrúar 2026 nr. 5814

Borgarráð

Ár 2026, þriðjudaginn 17. febrúar, var haldinn 5814. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:06. Viðstödd voru Alexandra Briem, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Kjartan Magnússon og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir, Líf Magneudóttir og Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtalin fulltrúi auk borgarstjóra tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Sanna Magdalena Mörtudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Heimir Snær Guðmundsson, Róbert Marshall og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Dís Sigurgeirsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 16. febrúar 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðar tillögur stýrihóps um umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla, dags. 16. febrúar 2026.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Ólafur Brynjar Bjarkason og Steinn Jóhannsson taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Aðalheiði Stefánsdóttur, Auði Ævarsdóttur, Bryndísi Evu Sverrisdóttur, Elísabetu Helgadóttur, Gyðu Guðmundsdóttur, Hildi Lilju Jónsdóttur og Valborgu Hlín Guðlaugsdóttur sem sitja fundinn með rafrænum hætti. Þá taka borgarfulltrúarnir Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Sabine Leskopf sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Aðalsteini Hauki Sverrissyni, Andreu Helgadóttur, Birni Gíslasyni, Einari Sveinbirni Guðmundssyni, Guðnýju Maja Riba, Helga Áss Grétarssyni, Magneu Gná Jóhannsdóttur, Mörtu Guðjónsdóttur, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Stefáni Pálssyni og Þorvaldi Daníelssyni sem taka sæti með rafrænum hætti. MSS25050076

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er sannfæring samstarfsflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur að með þessum breytingum á skipulagi leikskólastarfs í Reykjavík séu mörkuð vatnaskil. Breytingarnar fela í sér að boðið verður upp á 36 tíma endurgjaldslausa dvöl fyrir öll leikskólabörn fyrir utan fæðisgjald en tekið er hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun. Þá eru innleiddir nýir afsláttarflokkar sem taka betur mið af raunverulegum aðstæðum einstæðra foreldra, efnaminni foreldra og foreldra barna með lítið bakland. Gjöldin hækka hjá þeim sem hæstar hafa tekjurnar. Lagðar eru fram nýjar tillögur um systkinasameiningu, umsjónarmenn leikskólahúsnæðis, aukna íslenskukennslu fyrir starfsfólk og umsækjendur með annað móðurmál en íslensku, einn lokunardag í vetrarfríi og starfsþjálfun. Markmið vinnunnar er að bæta náms- og starfsaðstæður í leikskólum Reykjavíkur, styrkja faglegt starf, bæta mönnun og minnka álag, samhliða því að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í starfi leikskólans. Tillögurnar byggja á þverpólitísku starfi sem kynnt var á haustdögum og fór í kjölfarið í umfangsmikið samráðsferli við foreldra, starfsfólk, leikskólastjórnendur og verkalýðsfélög. Unnið var úr tæplega 200 umsögnum sem bárust í gegnum samráðsgáttina. Vandlega verður fylgst með innleiðingu aðgerðanna, árangur metinn reglulega og brugðist við ef þörf krefur.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn vill að Reykjavík verði barnvænt sveitarfélag. Vinna við að greina kosti og galla þeirra leiða sem sveitarfélög höfðu farið til þess að bæta starfsaðstæður í leikskólum var sett af stað að frumkvæði Framsóknar fyrr á kjörtímabilinu. Nýr meirihluti tók við verkefninu og hefur sett mark sitt á það. Framsókn telur afar brýnt að bæta starfsaðstæður leikskólakennara og skapa hvata til þess að foreldrar skrái réttan dvalartíma barna. Framsókn gagnrýndi fyrri tillögur meirihlutans vegna þess að gjaldskrá var afar ósanngjörn og kerfið ósveigjanlegt. Að mati Framsóknar hefur pendúllinn nú sveiflast langt í hina áttina og nú er gjaldskráin orðin svo lág að hvatinn til styttingar er hugsanlega ekki nægilega mikill til að ná markmiðinu um breyttan vistunartíma. Tillögurnar hafa þó tekið jákvæðum breytingum í heildina. Framsókn fagnar aukinni íslenskukennslu fyrir leikskólastarfsfólk en telur að viðmiðið hefði mátt vera þyngra, B1 ekki C1. Einnig vantar viðmið um fjölda starfsfólks með góða íslenskukunnáttu á hverri deild. Tillaga um markvissari nýliðaþjálfun er til bóta. Framsókn furðar sig á tillögu um , „systkinasameiningu“, í henni felst engin breyting á núverandi fyrirkomulagi. Hvetja þarf Alþingi til að lögfesta systkina- og hverfisforgang. Þá er ekkert komið inn á bættan leik- eða námsgagnakost né hljóðvist eða birtu í leikskólum sem hefur mikil áhrif á starfsumhverfi leikskóla. Framsókn leggst eindregið gegn því að bætt sé við lokunardegi í vetrarfríi. Það er skerðing á þjónustu við fjölskyldur sem Framsókn leggst gegn. Af þessum sökum situr Framsókn hjá við afgreiðslu málsins. Framsókn óskar þess að þessar tillögur verði til þess að bæta starfsaðstæður leikskólakennara og bæti leikskólastarf sem fyrst og fremst er í þágu menntunar og velferð barna.

    Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Viðreisnar fagnar því að stýrihópurinn hafi hlutstað á tillögur Viðreisnar við úrbætur tillögunnar. Enn standa eftir áhyggjur af stöðugum hvata til fækkunar vistunartíma og vill Viðreisn fremur sjá áherslur á að bjóða gæðaþjónustu lengur og með sveigjanlegri opnunartíma til að geta betur mætt ólíkum þörfum íbúa borgarinnar. Umsjónarmenn fasteigna er frábær viðbót og takmarkar vonandi lokanir vegna viðhalds og viðgerða. Einnig gerir fulltrúinn athugasemd við að horft sé til fjölskyldunúmers er varðar systkini við úthlutun leikskólaplássa. Nútímafjölskyldur falla oft undir ólík fjölskyldunúmer og væri því betra að horfa til þess í víðara samhengi, s.s. með forsjágrunn og þátturinn sé þannig ekki bundin einum þætti. Þá verður að segjast að afsláttarkerfið minni óneitanlega á tekjutengingu og áhrif slíkrar tengingar getur verið neikvæð og dregið úr atvinnuþátttöku tekjulágra og ber að varast. Að lokum virðist mikið kapp lagt í að gjöldin séu lægri en hæstu gjöld annarra sveitarfélaga óháð kostnaði við vistunina sem verður að teljast einkennilegt þegar horft er til eins stórrar rekstrareiningar og leikskólar eru í borgarkerfinu. Gjaldfrjáls leikskóli 36 tíma á dag er ekki sú sýn sem fulltrúinn hefur af því hvernig best megi reka þennan þjónustulið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 11. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að fela sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs að gera viðauka við þjónustusamninga tilgreindra sjálfstætt starfandi leikskóla vegna óska um að heimilt sé að víkja frá ákvæði um innritun eftir kennitölu, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Ólafur Brynjar Bjarkason og Steinn Jóhannsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. SFS25060014

    Fylgigögn

  3. Lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. febrúar 2026, um tækifærisleyfi til lengri opnunartíma til kl. 02.00, aðfaranótt föstudagsins 20. febrúar nk. í tilefni af skólaballi Verzlunarskóla Íslands í Víkinni, Traðarlandi 1. MSS26020004
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  4. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Borgarráð samþykkir að ráðast í þvott og sópun stofnbrauta í eigu Reykjavíkurborgar án tafar. Jafnframt verði umhverfis- og skipulagssviði falið að útfæra verklag vegna götuhreinsana yfir vetrartímann í Reykjavík. Þjónustuhandbók um vetrarþjónustu verði uppfærð með það fyrir augum að götuhreinsanir verði hluti vetrarþjónustu borgarinnar en þegar vetur er snjóléttur er mikilvægt að götur séu hreinsaðar svo draga megi úr svifryksmengun í andrúmslofti. MSS26020084

    Frestað.

  5. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fyrir rúmu ári, 30. janúar 2025, lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að leynd yrði aflétt af skýrslu vinnuhóps borgarstjóra um sjálfbærni og rekstur Félagsbústaða, sem skilað var í mars 2024. Tillagan var rökstudd með því að eðlilegt væri að áðurnefnd skýrsla yrði gerð opinber í ljósi mikilvægis félagsins, sem og í þágu upplýstrar umræðu um málefni þess. Á fundi borgarráðs, 20. febrúar 2025, var umræddri tillögu vísað til umsagnar Félagsbústaða undir embættisafgreiðslum. Óskað er eftir upplýsingum um meðferð og afdrif tillögunnar. Er jafnframt óskað eftir því að hún verði lögð fyrir borgarráð sem fyrst til afgreiðslu. MSS23080011

    -    Kl. 10:45 víkur Hildur Björnsdóttir af fundi.

Fundi slitið kl. 10:51

Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir

Einar Þorsteinsson Kjartan Magnússon

Sanna Magdalena Mörtudottir Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 17. febrúar 2026 - Prentvæn útgáfa