No translated content text
Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks
Ár 2022, fimmtudaginn 1. desember var haldinn 50. fundur aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.02. Fundinn sátu: Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir, Þorkell Sigurlaugsson, Ingólfur Már Magnússon, Lilja Sveinsdóttir, Hallgrímur Eymundsson, Björgvin Björgvinsson, Anna Kristín Jensdóttir. Eftirtaldir fulltrúar aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Unnur Þöll Benediktsdóttir, Hanna Björk Kristinsdóttir. Eftirtaldir starfsmenn sátu fundinn: Anna Kristinsdóttir og Guðný Bára Jónsdóttir. Eftirtaldir starfsmenn sátu fundinn með rafrænum hætti: Þórdís Linda Guðmundsdóttir. Valgerður Jónsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning Umhverfis- og skipulagssviðs á aðgengi við Hlemm. MSS22110236.
Edda Ívarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar Þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 21. nóvembervið fyrirspurn fulltrúa Öryrkjabandalags Íslands um vefþulu á vef Reykjavíkurborgar, sbr. 5 lið fundargerðar aðgengisnefndar frá 3. nóvember 2022.
- Kl. 10.26 tekur Hlynur Þór Agnarsson sæti á fundinum með rafrænum hætti.
Aðgengis- og samráðsnefnd leggur fram svohljóðandi bókun:
Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks skorar á þjónustu- og nýsköpunarsvið að setja upp upplestrarhnapp á fréttasíðu www.reykjavik.is, t.d þá vefþulu sem þegar búið er að greiða fyrir leyfi og afnot á frá árinu 2020.
Ólafur Sólimann tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lögð fram drög að tillögu aðgengis- og samráðsnefndar um sundlaugar í Reykjavík. MSS22110111.
Frestað -
Lögð fram drög að fyrirspurn aðgengis- og samráðsnefndar vegna sundlaugar í Klettaskóla. MSS22110240.
Frestað. -
Lögð fram svohljóðandi tillaga aðgengis- og samráðsnefndar í Reykjavík um opnunartíma sundlauga í Reykjavík. MSS22120007.
SamþykktFylgigögn
-
Fram fer umræða um hlutverk og stöðu aðgengisfulltrúa. MSS22010199.
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 28. október 2022, um ábendingar íbúaráðs Laugardals vegna Römpum upp Ísland. MSS22020088.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 16. nóvember 2022, um ábendingar íbúaráðs Miðborgar og Hlíða vegna Römpum upp Ísland. MSS22020088.
Fylgigögn
Fundi slitið 11:25
Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir
Þorkell Sigurlaugsson Björgvin Björgvinsson
Ingólfur Már Magnússon Lilja Sveinsdóttir
Anna Kristín Jensdóttir Hallgrímur Eymundsson
PDF útgáfa fundargerðar
50. Fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar frá 1. desember 2022.pdf