Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks
Ár 2022, fimmtudaginn 1. september, var haldinn 44. fundur aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.02. Fundinn sátu: Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir, Hanna Björk Kristinsdóttir, Ingólfur Már Magnússon, Lilja Sveinsdóttir, Björgvin Björgvinsson, Unnur Þöll Benediktsdóttir, Hallgrímur Eymundsson. Eftirtaldir starfsmenn sátu fundinn: Anna Kristinsdóttir, Guðný Bára Jónsdóttir, Þórdís Linda Guðmundsdóttir og Bragi Bergsson.
Valgerður Jónsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning Velferðarsviðs á leiðbeiningum fyrir seinfæra foreldra. MSS22080245
Halldóra Gyða Matthíasd. Proppé og Rakel Þorsteinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að vísa til umsagnar mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu.
-
Fram fer kynning mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu á bæklingi um fordóma gegn fötluðu fólki á auðskildu máli. MSS22030281
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 24. ágúst 2022, þar sem óskað er umsagnar aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks um tillögu fjármála- og áhættustýringasviðs, dags 22. ágúst 2022, varðandi að hætta að prenta út og senda greiðsluseðla á pappír. Jafnframt eru lögð fram drög að umsögn aðgengis- og samráðsnefndar, dags. 1. september 2022. FAS22080009
Samþykkt að fela formanni nefndarinnar og mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu að klára umsögnina.
-
Fram fer kynning umhverfis- og skipulagssviðs á verkefnum í aðgengismálum 2022. MSS22080074
-
Fram fer kynning umhverfis- og skipulagssviðs á almenningsgarði fyrir öll í verkefninu Hverfið mitt. MSS22020075
- Kl. 11.17 víkja Bragi Bergsson og Þórdís Linda Guðmundsdóttir af fundinum.
Fylgigögn
-
Kosning varaformanns aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks. MSS22080074
Samþykkt að Ingólfur Már Magnússon verði varaformaður aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks.
PDF útgáfa fundargerðar
44. Fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar frá 1. september 2022.pdf