Tendrun Friðarsúlu Yoko Ono

Á afmælisdegi Lennons, 9. október er Friðarsúlan tendruð og lýsir hún upp kvöldhimininn til og með 8. desember en þann dag dó Lennon árið 1980. Það er boðið upp á siglingu út í Viðey og þá getur þú upplifað notalega og umfram allt friðsæla stund við tendrunina. 

Aðrir dagar

Friðarsúlan er líka tendruð frá vetrarsólstöðum til nýárs. Í eina viku í kringum vorjafndægur og á sérstökum hátíðardögum sem listamaðurinn Yoko Ono og Reykjavíkurborg koma sér saman um.

Um listaverkið

Friðarsúlan er hugarfóstur myndlistarmannsins, tónlistarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið.

 

Verkið er í formi „óskabrunns“, en upp úr honum stígur há og mikil ljóssúla. Orðin „Hugsa sér frið“ eru grafin í brunninn á 24 tungumálum.

 

Ljóssúlan er samansett úr mismunandi geislum sem sameinast í einu sterku ljósi. Sex ljósgeislanna fara lárétt um göng á palli í kringum brunninn og er endurkastað upp á við með speglum. Þéttleiki ljóssins, sem stafar frá súlunni, er háður sífelldum breytingum á ögnum í andrúmsloftinu sem hegða sér í takt við þá margbreytilegu veðráttu sem einkennir Ísland.