Viðburðapottur Sumarborgarinnar 2024

Mannlíf

Sumarstemning í miðborg Reykjavíkur
Fólk að dansa í Bankastræti

Sumarborgin auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða sem stuðla að samstarfi borgar og aðila í miðborginni. 

Markmið Sumarborgarinnar er að efla og mannlíf og menningu og styðja þannig við fyrirtæki; verslun, veitingastaði og aðra þjónustu í miðborginni að hvetja borgarbúa og aðra gesti til að upplifa miðborgina og njóta alls þess sem hún hefur uppá að bjóða.

Undanfarin ár hefur Viðburðapotturinn verið undirstaða skemmtilegra uppákoma í miðborginni til að mynda Sumarmatstöðurnar, Dansinn með Kramhúsinu, Götubitahátíðin, grænmetismarkaðir, pop–up tónleikar og fleira sem styður við líflegt borgarumhverfi og starfsemi á svæðinu.

Helstu skilyrði fyrir styrkveitingu:

  • Verkefnið skal glæða borgina lífi og varpa ljósi á fjölbreytileika miðborgarinnar, ekki er verra ef hugsað um viðburði sem fara fram á torgum borgarinnar (s.s. Káratorgi, Óðinstorgi, Vitatorgi, Bernhöftstorfu, Boðatorgi) og viðburða er höfða til ungra gesta miðborgarinnar.
  • Gott er ef verkefnið skal vera samstarfsverkefni hið minnsta tveggja aðila.
  • Verkefnið skal fara fram á tímabilinu frá júní 2024 – ágúst 2024.
  • Margir fái að njóta og sé þátttakendum að kostnaðarlausu.

Framkvæmdir tengdar húsnæði, innan- eða utanhúss, verða ekki styrktar, og þá er heldur ekki verið að styrkja markaðssetningu einstaka reksturs. Ekki eru veittir styrkir vegna Menningarnætur úr þessum potti.

Hægt er að sækja um styrk að hámarki 500.000 kr.