Vetrarhátíð verður haldin dagana 2.–4. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.
Þessi hátíð ljóss og myrkurs samstendur af þremur meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljósaslóð ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni.
Frítt er inn á alla viðburði á Vetrarhátíð.
Safnanótt
Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 3. febrúar en þá opna fjölmörg söfn dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá frá klukkan 18:00 til 23:00. Lögð verður áhersla á að bjóða upp á óhefðbundna viðburði þetta kvöld og veita gestum nýja sýn á söfnin. Íbúar og gestir borgarinnar á öllum aldri geta notið Safnanætur fram eftir kvöldi sér að kostnaðarlausu.
Sundlauganótt
Sundlauganótt verður haldin laugardagskvöldið 4. febrúar en þá verður frítt í sund kl. 17:00–22.00 í tólf sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í laugunum og munu gestir fá að upplifa einstaka og óvenjulega kvöldstund í mögnuðu myrkri. Ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi, þar sem gestir eru hvattir til að taka þátt með því að slaka á og njóta stundarinnar.
Ljósaslóð
Ljósaslóð Vetrarhátíðar verður í lykilhlutverki en það er gönguleið frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og niður á Austurvöll sem er vörðuð með ljóslistaverkum. Þessi ljóslistaverk munu lýsa upp miðbæinn kl. 18:30–22:30 alla daga Vetrarhátíðar. Upplifðu listaverk utandyra með þínum nánustu á þínum eigin hraða.
Velkomin á Vetrarhátíð!